Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
ÆFINGASTÖÐIN
Æfingastöðin er sjálfstæð heilbrigðisstofnun og aðalhlutverk hennar er hæfing og endurhæfing barna og ungs fólks með frávik í hreyfingum og þroska. Æfingastöðin sinnir einnig ákveðnum hópi fullorðinna einstaklinga, svo sem þeim sem hafa verið hreyfihamlaðir frá barnæsku eða eru með Parkinsonsjúkdóm.
Á Æfingastöðinni starfa bæði sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar eftir hugmyndafræðinni um fjölskyldumiðaða þjónustu. Boðið er upp á bæði einstaklingsþjálfun og/eða hópþjálfun.
Lögð er áhersla á að:
- Koma til móts við ólíkar þarfir barna og foreldra þeirra
- Byggja á þekkingu og reynslu fjölskyldna
- Eiga gott samstarf við foreldra og aðra þá sem koma að umönnun og þjónustu
Gildi Æfingastöðvarinnar eru virðing, samvinna og lífsgæði.

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra á og rekur Æfingastöðina. Félagið er með þjónustusamning við Sjúkratryggingar Íslands um þátttöku ríkisins í kostnaði við þjónustuna. Sú ómetanlega velvild og fjárstuðningur sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur notið í gegnum tíðina frá fjölmörgum einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum hefur skipt sköpum fyrir starfsemi Æfingastöðvarinnar og gert uppbyggingu og þróun hennar mögulega.
KYNNINGARBÆKLINGUR UM ÆFINGASTÖÐINA
GÆÐAHANDBÓK ÆFINGASTÖÐVARINNAR
Leit












