Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
ALGENGAR SPURNINGAR
Hverjir geta leitað til okkar?
Þú getur leitað til Æfingastöðvarinnar ef:
- Þú átt barn sem þarf aðstoð til að halda í við jafnaldrana í leik og starfi.
- Þú ert með hreyfihömlun og þarft aðstoð við líkamsþjálfun og hjálpartæki
- Þú ert með Parkinsonsjúkdóm og vilt stunda líkamsrækt í hóp undir eftirliti reyndra sjúkraþjálfara
- Þig vantar fræðslu, ráðgjöf eða upplýsingar um þjónustuna
- Ef þú vilt komast í samstarf vegna hæfingar eða endurhæfingar barna
En mundu að læknir þarf að skrifa beiðni um þjálfun!
Hvernig er greiðslufyrirkomulagið?
Börn og unglingar yngri en 18 ára, einstaklingar með umönnunarkort frá TR og lífeyrisþegar sem fá greidda tekjutryggingu greiða 20% af fyrstu 25 tímunum. Ævinlega er skráður tvöfaldur tími fyrir fyrstu heimsókn. Að loknum 25 tímum er sótt um þjálfunarkort til Tryggingastofnunar ríkisins sem gildir í eitt ár frá því að meðferð hófst. Sama kortið gildir í sjúkra-, iðju- og talþjálfun.
Smelltu hér til að fá frekari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag.
Hvað ef ég kemst ekki í skráðan tíma?
Við biðjum fólk vinsamlega að tilkynna forföll með góðum fyrirvara. Ef ekki er mætt í þrjá skráðatíma í röð, án samráðs við þjálfara, áskilur Æfingastöðin sér rétt til að veita öðrum tímann.
Hvar er Æfingastöðin staðsett?
Æfingastöðin
Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík
Sími: 535 0900
sjá kort
Útibú Æfingastöðvarinnar í Hafnarfirði
Íþróttahúsinu við Strandgötu, 220 Hafnarfirði
sími: 544 8999
sjá kort
Hvernig er hægt að hafa samband?
Hægt er að hafa samband við afgreiðslu Æfingastöðvarinnar í síma 535 0900
Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið slf@slf.is
Hvenær er opið?
Afgreiðsla Æfingastöðvar SLF er opin alla virka daga frá kl. 08:00 - 16:00
Sundlaugin er opin alla virka daga (nema fimmtudaga) fyrir þá sem ekki nýta sér almenningssundlaugar,
frá kl. 8:00 – 9:30 og kl. 12:30 – 15:00.
Gjald er kr. 100.-
Æfingasalurinn er opinn alla virka daga
frá kl. 8:00 – 16:00
Gjald er kr. 200.-
Fréttir og viðburðir
6.9.2010
Útitónleikar í Reykjadal
Leit










