Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Framtíðarsýn Æfingastöðvarinnar
Æfingastöðin er þekkt í samfélaginu og viðurkennd af stjórnvöldum, samstarfsaðilum og almenningi sem miðstöð þjónustu og þekkingar í hæfingu og endurhæfingu fyrir börn og ungt fólk með frávik í hreyfingum og þroska.
Hjá Æfingastöðinni er veitt samþætt, sveigjanleg og árangurík þjónusta sem kemur til móts við þarfir og væntingar viðskiptavina og byggir á þverfaglegri samvinnu og vísindalega viðurkenndum aðferðum.
Á Æfingastöðinni er virkt gæðaþróunarstarf og þjónustan stenst samanburð við sambærilegar stofnanir sem eru leiðandi í fjölskyldumiðaðri þjónustu á Norðurlöndum. Æfingastöðin tekur þátt í norrænu samstarfi við þróun og uppbyggingu framúrskarandi hæfingar- og endurhæfingarþjónustu.
Framtíðarsýn Æfingastöðvarinnar er að öll börn njóti sín og taki virkan þátt í samfélaginu á sínum forsendum
Fréttir og viðburðir
Leit












