Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Gildi Æfingastöðvarinnar
Fólk sem vinnur á Æfingastöðinni ber virðingu fyrir margbreytileika og mismunandi sjónarhornum. Það veit að börn og fjölskyldur eru sérfræðingar í sínu lífi og þekkja best eigin aðstæður, getu og þarfir.
Aðeins með náinni samvinnu við barnið, fjölskylduna og aðra sem veita þeim þjónustu eða umönnun er mögulegt að öðlast heildstæða sýn á þarfir barnsins og miða þjónustuna við getu þess, áhuga og umhverfi. Með samvinnu getur barnið náð lengra.
Takmark þjónustu Æfingastöðvarinnar að efla sjálfstæði og þátttöku barnsins og fjölskyldunnar svo þau blómstri og njóti lífsins á sínum forsendum.
Fréttir og viðburðir
Leit












