Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
IÐJUÞJÁLFUN Í HAFNARFIRÐI
Iðjuþjálfunardeild á vegum Æfingastöðvarinnar var formlega opnuð í Hafnarfirði 1. október árið 2000. Þar starfa tveir iðjuþjálfar. Ástæða þess að deildin var opnuð var að félag aðstandenda barna með sérþarfir í Hafnarfirði (FABS) óskaði eftir að gera hafnfirskum börnum kleift að sækja iðjuþjálfun í sinni heimabyggð. Hafnarfjarðarbær leggur til húsnæði í íþróttahúsinu við Strandgötu og stendur undir kostnaði við rekstur þess en Æfingastöðin sér um annan kostnað svo sem tæki, innréttingar og greiðslu launa. Börn frá Hafnarfirði og Álftanesi njóta forgangs um þjónustuna en einnig koma börn búsett á Suðurnesjum. Iðjuþjálfunardeild Æfingastöðvarinnar í Hafnarfirði í hefur notið mikillar velvildar frá góðgerðarfélögum og fyrirtækjum í bænum.
Æfingastöðin hefur frá árinu 2000 verið í skipulögðu samstarfi við Öskjuhlíðarskóla. Nemendum skólans gefst kostur á að fá sjúkra- og iðjuþjálfun í skólanum auk þess sem þjálfarar taka þátt í að aðlaga vinnuumhverfi þeirra. Þjálfarar vinna einnig með starfsfólki skólans að því að flétta þjálfunina inn í skóladaginn til þess að börnin öðlist smám saman færni í athöfnum sem skipta þau mestu máli í dagsins önn.

Fréttir og viðburðir
Leit












