Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

VILTU STYRKJA STARFSEMINA

Allt uppbyggingar- og þróunarstarf Æfingastöðvarinnar hefur byggst á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja, auk tekna af sölu Jólaóróanum, minningarkorta, Hvata hvolps og símahappdrættis Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Sú mikla velvild sem starfseminni hefur verið sýnd i gegnum tíðina hefur því skipt gríðarlegu máli og gert mögulegt að skapa þá umgjörð sem starfað er við í dag.

Þeim sem áhuga hafa á að styrkja starfsemi Æfingastöðvarinnar með fjárframlögum, er bent á reikning númer 53 í Arionbanka í Austurstræti, Reykjavík.

Upplýsingar til útfyllingar gíróseðils eða innlagnarseðils:

Banki     Hb    Reikn.nr.    Kennitala
0301     26             53      630269-0249

Einnig er styrktaraðilum að sjálfsögðu velkomið að hafa samband við skrifstofu félagsins í síma 535 0900, opið er alla virka daga frá kl. 08:00 - 16:00.

Símahappdrætti SLF er eitt af stærstu og elstu lausasöluhappdrættum landsins. Dregið er í happdrættinu einu sinni á ári, á aðfangadag. Síðustu ár hafa bifreiðar frá Toyota verið í vinning, á annan tug í hvert sinn!  

Minningarkort frá Styrktarfélaginu eru sérlega falleg. Þau eru send samdægurs. Senda kort.

Jólaóróar Styrktarfélagsins  í túlkun fremstu hönnuða og rithöfunda landsins eru seldir í desember ár hvert. Kertasníkir kom út fyrir jólin 2006, fyrstur jólasveinanna.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati