Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Námsstefna um fjölskyldumiðaða þjónustu

Æfingastöðin stóð fyrir námsstefnu um fjölskyldumiðaða þjónustu á Hilton Reykjavík Nordica mánudaginn 29. september 2008.

 

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um námsstefnuna 

Smelltu hér til að sjá dagskrá námsstefnunnar

Smelltu hér fyrir upplýsingar um fyrirlesara námsstefnunar Dr. John Laporta

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um fjölskyldumiðaða þjónustu

 

 Dr.LaPorta

Dr. John LaPorta starfar sem framkvæmdastjóri Thames Valley Children´s Centre í suðvestur Ontario í Kanada. Það er endurhæfingastöð sem hefur verið í fararbroddi í að veita fjölskyldumiðaða þjónustu fyrir börn og ungmenni með skerta tjáningu, skerta líkamlega færni, einhverfu og þroskaraskanir. John gegnir einnig stöðu aðstoðarprófessors í School of Communication Sciences & Disorders við Heilbrigðisvísindadeild Háskólans í vestur Ontario.

John LaPorta er með grunnmenntun á sviði sálfræði en býr auk þess yfir víðtækri reynslu af stjórnun, forystu, ráðgjöf og kennslu. Hann hefur átt sæti í ýmsum fræðslunefndum, starfað í samtökum til aðstoðar börnum, á meðferðarstofnunum og í einkageiranum. Hann hefur unnið að kennslu bæði á framhalds- og háskólastigi og komið að fjölmörgum vinnusmiðjum, málstofum og námskeiðum sem ráðgjafi í málum sem snúa að rekstri, fræðslustarfsemi og faglegum málum bæði klínískum og stjórnunarlegum. Fjölmargar greinar og ritgerðir eftir hann hafa verið birtar.

Frá því seint á 8. áratugnum hefur John LaPorta verið meðal þeirra sem getið er í útgáfu Who´s Who Among Top Executives in North America vegna framlags síns og afreka í þjónustu við börn.

Það er mikill fengur í að fá John LaPorta til að miðla af reyslu sinni og þekkingu hér á Íslandi.

Nánari upplýsingar um Dr. LaPorta

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati