Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Sagan

Árið 1956 hóf Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekstur Æfingastöðvarinnar. Tilgangur starfseminnar var að bjóða uppá endurhæfingarþjónustu fyrir fólk sem hafði misst hreyfifærni vegna mænuveiki.

Breyttar þarfir, aukin þekking og ný viðhorf hafa í áranna rás ýtt undir stöðuga uppbyggingu og þróun á Æfingastöðinni og styrkt stöðu hennar sem miðstöð þekkingar og þjónustu við börn og ungmenni með skerta færni.  

1956

Starfsemi Æfingastöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra hefst að Sjafnargötu 14 í Reykjavík

1968

Starfsemin flytur í núverandi húsnæði að Háaleitisbraut 13

1972

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur rekstur leikskóla fyrir fötluð börn í húsakynnum Æfingastöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra

1982

Viðbygging við Háaleitisbrautina tekin í notkun. Húsnæðið stækkaði úr 700m2 í 1600m2

1997

Ný og fullkomin sundlaug var tekin í notkun

2000

Útibú Æfingastöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Hafnarfirði tók til starfa í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ

2000

Samstarf við Öskjuhlíðaskóla um þjónustu sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa  í skólanum

2001

Þjónustusamningur til fimm ára gerður við Heilbrigðisráðuneytið í fyrsta sinn

2007

Innleiðing fjölskyldumiðaðarar þjónustu á Æfingastöðinni hefst

2009 Nafninu breytt í Æfingastöðin og nýtt merki tekið í notkun. Samstarfssamningar gerðir við helstu samstarfsaðila

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati