Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Iðjuþjálfar á Æfingastöðinni
Iðjuþjálfar búa yfir víðtækri þekkingu á færni sem tengist daglegri iðju barna. Þá er átt við allt sem börn og ungt fólk tekur sér fyrir hendur í daglegu lífi, í þeim tilgangi að annast sig, inna af hendi ýmis störf og njóta þess sem lífið hefur að bjóða.
Þjónusta iðjuþjálfa er mismunandi að umfangi og innihaldi allt eftir þörfum barnsins en áhersla er ávallt lögð á að auka möguleika barnisins til að þroskast og taka þátt í leik og daglegum athöfnum sem hafa þýðingu fyrir það.
Iðjuþjálfar vinna með barninu
við að meta, leiðbeina og æfa aðferðir við:
- Eigin umsjá
Að klæða sig, baða, fara á klósett, snyrta sig og matast. - Fínhreyfifærni
Að nota hendur og fingur t.d að leika sér með leikföng, handleika hluti og nota áhöld og skriffæri. - Færni í samskiptum og leik
Að hlusta á aðra og gera sig skiljanlegan. Að vera hluti af hóp, læra félagslegar venjur og lynda við aðra. Taka þátt í tómstundum. - Að skynja umhverfi og eigin líkama
Túlkun skynboða t.d. sjón og hljóð, snertingu og jafnvægi. - Aðlögun umhverfis og athafna
Skipulag við verkefnavinnu, vinnuumhverfi, setstaða, einbeiting og minni. - Tölvuvinnu
Færni við tölvuvinnu og notkun á sérbúnaði.
Iðjuþjálfar vinna með foreldrum, umönnunar- og/eða þjónustuaðilum
við að meta og veita upplýsingar, ráðgjöf og þjálfun í:
- Hvernig hægt er að stuðla að færniþjálfun í daglegu umhverfi
Aðferðir til að hjálpa barninu að tileinka sér nýja færni og hvernig nýta megi tækifærin sem gefast í daglegu lífi til skyn- og hreyfiörvunar. - Hvernig aðlaga má umhverfi og athafnir
Til að auðvelda barninu að vera meira sjálfbjarga, virkara í umhverfi sínu og taka þátt í leik og starfi með félögum og fjölskyldu. - Að finna leiðir til þátttöku í félagsstarfi og tómstundum
Í skólanum og í frístundum. - Notkun hjálpartækja
Hvernig nota má hjálpartæki til að auka sjálfsbjargargetu og færni.
Iðjuþjálfar aðstoða við að velja og útvega hjálpartæki
sem henta barninu og bæta færni þess og sjálfsbjargargetu t.d.
- Vinnustóla og sessur
- Hjólastóla og rafmagnshjólastóla
- Sturtu- og salernisstóla
- Áhöld til að auðvelda borðhald og snyrtingu
- Sérbúnað vegna tölvuvinnu svo sem rofa
- Aðlögun/breytingar á húsnæði
Leit












