Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Sjúkraþjálfarar á Æfingastöðinni

Sjúkraþjálfarar búa yfir víðtækri þekkingu á stoðkerfi líkamans, hreyfingum og hreyfiþroska. Sjúkraþjálfarar aðstoða barnið við að bæta, viðhalda og nýta líkamlega færni sína svo það eigi auðveldara með að sinna því sem það þarf og vill taka sér fyrir hendur í daglegu lífi, hreyfa sig og viðhalda góðri heilsu. 

Þjónusta sjúkraþjálfara er mismunandi að umfangi og innihaldi allt eftir þörfum hverju sinni en takmarkið er ávallt að auka möguleika barnsins til að þroskast og taka þátt í leik og daglegum athöfnum sem hafa þýðingu fyrir barnið. 

 

Sjúkraþjálfarar vinna með barninu
við að meta, leiðbeina og hjálpa barninu að bæta og viðhalda:    

  • Líkamlegu ástandi:
    Styrk vöðva og hreyfanleika liða, þol, þrek og vellíðan. 
  • Hreyfistjórn og samhæfingu:
    Jafnvægi í sitjandi og standandi stöðu og á hreyfingu, samhæfingu hreyfinga og boltafæni.
  • Líkamsvitund og skynjun:
    Skynja hvað gerist í líkamanum við hreyfingar, þekkja líkamshlutana og afstöðuhugtök, örva snerti- og stöðuskyn og bæta líkamsstöðu.
  • Hreyfiþroska og grófhreyfifærni:
    Velta sér, skríða, setjast upp, príla, ganga, hoppa og hlaupa. Geta til að hreyfa sig og komast um í eigin umhverfi t.d. í skólanum eða við aðrar aðstæður. Færni og þátttaka í leik og íþróttum. 

 

Sjúkraþjálfarar vinna með foreldrum og umönnunar- og þjónustuaðilum
við að meta og veita upplýsingar, ráðgjöf og þjálfun í: 

  • Hvernig hægt er að stuðla að færniþjálfun í daglegu umhverfi:
    Aðferðir til að hjálpa barninu að tileinka sér nýja færni og hvernig nýta megi tækifærin sem gefast í daglegu lífi til skyn- og hreyfiörvunar. Aðstoð við að stuðla að þátttöku í íþróttum og tímstundum og efla ábyrgð á eigin heilsu.
  • Hvernig aðlaga má umhverfi og athafnir:
    Til að auðvelda barninu að vera meira sjálfbjarga, virkara í umhverfi sínu og taka þátt í leik og starfi með félögum og fjölskyldu.
  • Líkamsstöðustjórnun:
    Finna hentugar líkasstöður fyrir barnið svo það eigi auðveldara með að leika, eiga samskipti, borða og drekka, sofa og hvílast. Aðferðir til að handleika mjög ung börn.
  • Notkun hjálpartækja:
    Hvernig nota má hjálpartæki til að auka sjálfsbjargargetu og færni. 
     
  • Vinnustellingum og lyftitækni:
    Færni til að aðstoða barnið með lágmarksálagi á þann sem aðstoðar og stuðla að því að barnið hjálpi sem mest til og nýti færnina sem það hefur.

 

Sjúkraþjálfarar aðstoða við að velja óg útvega hjálpartæki
sem henta barninu og bæta færni þess og sjálfstæði, til dæmis:   

  • gönguhjálpartæki, göngugrindur, skó og innlegg
  • fótspelkur, bolspelkur og standskeljar
  • hjólastóla og rafmagnshjólastóla
  • vinnustóla, dýnur og sessur
  • salernisstóla, sturtustóla

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati