Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Stjórnendur

Framkvæmdastóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra:

Framkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri félagsins (þ.m.t. Æfingastöðvarinnar) og kemur fram fyrir þess hönd í öllum málum sem varða daglegan rekstur.

Framkvæmdastjóri:

Vilmundur Gíslason

 

Yfirþjálfarar Æfingastöðvarinnar:

Yfirþjálfarar hafa yfirsýn yfir starfsemi Æfingastöðvarinnar og bera ábyrgð á faglegri stjórnun og stefnumótun. Þeir sjá um skipulagningu á innra starfi, gæðamálum og mannauðsmálum ásamt því að vera talsmenn Æfingastöðvarinnar. Yfirþjálfarar taka á móti með beiðnum um þjónustu og hafa umsjón með biðlista.

Yfirþjálfarar:

Áslaug Guðmundsdóttir, yfirsjúkraþjálfari

Gerður Gústavsdóttir, yfiriðjuþjálfi

 

Teymisstjórar:

Teymisstjórar leiða teymin sem bera ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd þjónustu við notendur á tilteknu aldursbili. Þeir hafa umsjón með því að innan teymisins byggist upp þekking á mikilvægum aldurstengdum málefnum sem snerta þjónustuna og að fjölbreytt úrræði teymisins byggi á þeirri þekkingu.

Teymisstjórar:

Valrós Sigurbjörnsdóttir, yngra teymi (0 - 6 ára)

Þorbjörg Guðlaugsdóttir, eldra teymi (6 ára og eldri)


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati