Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Þjónusta Æfingastöðvarinnar

Starfsemi Æfingastöðvarinnar er að mestu skipulögð til að mæta þörfum barna og ungmenna þó að margir fullorðnir nýti sér einnig þjónustuna. Flestir þeirra fullorðnu sem hingað leita hafa verið hreyfihamlaðir frá barnæsku en auk þess stundar fjölmennur hópur fólks með Parkinsonsjúkdóm líkamsþjálfun á Æfingastöðinni.

 2009-Bj.Þórdís sund

Þjónustan er veitt að beiðni lækna, af sjúkraþjálfurum og iðjuþjálfum í nánu samstarfi við barnið, fjölskylduna og aðra sem veita þeim þjónustu eða umönnun. Þjónustan fer fram í húsakynnum Æfingastöðvarinnar eða í nánasta umhverfi barnsins svo sem í leikskólanum, skólanum eða á heimilinu.

Börnin sem koma á Æfingastöðina eiga í erfiðleikum með hreyfingar og færni við daglega iðju. Það þýðir að þau geta ekki að fullu framkvæmt verk og athafnir sem varða eigin umsjá, að komast á milli staða, leika sér eða læra. Það er mismunandi hversu mikil áhrif þetta hefur á daglegt líf barnanna. Það er háð aldri þeirra og eðli vandans en ekki síður því umhverfi sem barnið býr við.

Lögð er áhersla á að þarfir og væntingar barnsins og fjölskyldunnar vísi veginn í þjónustunni og að úrræðin séu fjölbreytt og sveigjanleg. Takmark þjónustunnar er ávallt að efla þátttöku og bæta lífsgæði barnsins og fjölskyldunnar.  

Þjónusta Æfingastöðvarinnar miðast við getu barnsins, áhuga þess og umhverfi. Hún beinist að því að aðstoða barnið við að nýta styrkleika sína til að eflast og ná auknum þroska, sjálfstæði og lífsgæðum.

Æfingastöðin starfar í nánu samstarfi við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Þroska- og hegðunarstöð heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Barnaspítala Hringsins, BUGL, Hjálpartækjamiðstöð, Sjónarhól og aðra þá sem veita börnum með sérþarfir þjónustu. Æfingastöðin vinnur einnig náið með félagsþjónustu sveitarfélaga og starfsfólki í skólum og leikskólum. Markmið með samvinnu er að auka samfellu og bæta þjónustu við fjölskyldur barna með sérþarfir á Íslandi.

Æfingastöðin vinnur í samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri að rannsóknum sem tengjast hæfingu og endurhæfingu og tekur þátt í verkmenntun nemenda í sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun.

 

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati