Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
GJALDSKRÁ
Komugjald á Æfingastöðina er greitt samkvæmt reglum Sjúkratrygginga Íslands um sjúkra- og iðjuþjálfun. Greiðsluseðlar eru sendir út mánaðarlega.
Fyrstu 30 skiptin á 12 mánaða tímabili:
| Börn og unglingar yngri en 18 ára | kr. 833 |
| Elli- og örorkulífeyrisþegar með óskerta tekjutryggingu | kr. 833 |
| Elli- og örorkulífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu | kr. 833 |
| Elli- og örorkulífeyrisþegar án tekjutryggingar | kr. 1255 |
Að loknum 30 skiptum á 12 mánaða tímabili:*
| Börn og unglingar yngri en 18 ára | Ekkert gjald |
| Elli- og örorkulífeyrisþegar með óskerta tekjutryggingu | Ekkert gjald |
| Elli- og örorkulífeyrisþegar með skerta tekjutryggingu | kr. 418 |
| Elli- og örorkulífeyrisþegar án tekjutryggingar | kr. 833 |
*Að loknum 30 skiptum á 12 mánaða tímabili sækir starfsmaður í afgreiðslu Æfingastöðvarinnar um þjálfunarkort til Sjúkratrygginga Íslands sem gildir í eitt ár frá því að þjálfun hefst. Sama kortið gildir í sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Sjúkratrygginga Íslands.
Æfingastöðin áskilur sér rétt til að veita öðrum tíma ef ekki er mætt í þrjá skráða tíma í röð án samráðs við þjálfara. Við biðjum fólk því vinsamlega að tilkynna forföll með góðum fyrirvara.
Leit












