Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Skjólstæðingar
0-18 ára
Þjónusta Æfingastöðvarinnar er fyrst og fremst ætluð börnum og fjölskyldum þeirra. Meirihluti barnanna á í smávægilegum erfiðleikum með hreyfingar og færni í daglegu lífi. Önnur þurfa mikla aðstoð, til dæmis við að klæða sig, borða, komast á milli staða eða leika sér við jafnaldra.
Tvö aldurstengd teymi, sem í eru iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar, eru starfrækt fyrir skjólstæðinga undir 18 ára aldri. Yngra teymi sinnir börnum á aldrinum 0-5 ára og eldra teymi 6-18 ára börnum.
18 ára og eldri
Þrátt fyrir að starfsemin sé að mestu miðuð við börn nýta margir fullorðnir sér þjónustu Æfingastöðvarinnar. Flestir þeirra hafa verið hreyfihamlaðir frá barnæsku en fjölmennur hópur fólks með Parkinsonsjúkdóm stundar einnig líkamsþjálfun á Æfingastöðinni.
Fréttir og viðburðir
Leit












