Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Einstaklingsþjálfun

Stærstur hluti þjálfunar á Æfingastöðinni er í formi einstaklingsþjálfunar. Einstaklingsþjálfun miðar að þörfum hvers og eins og getur til dæmis beinst að:

  • Gróf- og fínhreyfifærni
  • Færni við eigin umsjá
  • Færni í samskiptum og leik
  • Skynjun umhverfis og eigin líkama
  • Aðlögun umhverfis

Þjálfun fer stundum fram í leikskóla eða skóla barnsins og í einstaka tilfellum á heimili þess. Þjálfarar vinna að markmiðum barnsins í samvinnu við foreldra og/eða starfsfólk leikskóla og skóla. Þeir veita fræðslu og ráðleggingar til barnsins, foreldra og/eða annarra umönnunaraðila. Þjálfarar sinna einnig hjálpartækjamálum.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati