Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Hópþjálfun fyrir fólk með Parkinsonsjúkdóm
Um árabil hefur verið boðið upp á hóptíma fyrir fólk með Parkinsonsjúkdóm á Æfingastöðinni. Þjálfarar hópsins eru Jóna Þorsteinsdóttir og Margrét Þórisdóttir sjúkraþjálfarar.
Áherslur
Mikið er lagt upp úr því að tímarnir séu líflegir og skemmtilegir um leið og gerðar eru æfingar til að viðhalda færni og bæta líðan. Æfingunum er stjórnað af sjúkraþjálfurum með mikla reynslu og þekkingu á þessu sviði.
Hvar og hvenær?
Um tvo getutengda hópa er að ræða og fer þjálfun fram tvisvar til þrisvar sinnum í viku í æfingasal og/eða sundlaug.
Æfingatímar eru sem hér segir:
Mánudagar: Tækjaþjálfun. Tímasetning í samráði við þjálfara.
Þriðjudagar: Hópþjálfun í sal kl. 9.00 og í laug kl. 10.45.
Fimmtudagar: Hópþjálfun í laug kl. 9.00 og í sal kl. 10.45.
Til að skrá sig þarf beiðni frá lækni og að hafa samband við Jónu Þorsteinsdóttur sjúkraþjálfara.
Fréttir og viðburðir
Leit












