Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Sjúkraþjálfun á hestbaki

sumardvöl reykjad

Á Æfingastöðinni er boðið upp á sjúkraþjálfun á hestbaki fyrir börn og ungmenni með skaða í miðtaugakerfi. Þetta er sérhæfð meðferð sem sjúkraþjálfari veitir í náinni samvinnu við hestinn sem er nýttur sem tæki í  meðferðinni. Þorbjörg Guðlaugsdóttir og Guðbjörg Eggertsdóttir, sjúkraþjálfarar á Æfingastöðinni eru með réttindi til að veita slíka þjálfun og hafa haft veg og vanda af þjálfuninni og þróun hennar á Æfingastöðinni.

Um er að ræða afmörkuð námskeið sem fara fram á tímabilinu janúar til júní í Reiðhöll Gusts í Kópavogi. Yfir sumartímann fer þjálfunin fram í Reykjadal í Mosfellsdal.

Sjúkraþjálfun á hestbaki getur gagnast börnum sem hafa þörf fyrir að bæta setjafnvægi, samhæfingu, styrk, göngufærni, snertiskynjun, áræðni og sjálfstraust. Þjálfari barns getur vísað í  þessa þjálfun telji hann að hún gagnist barninu.

Nánari upplýsingar má fá með því að senda póst á  thorbjorg@slf.is

 

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati