Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Þverfagleg móttaka

Börn sem eru með stoðkerfisvandamál og eru skjólstæðingar Æfingastöðvarinnar eiga kost á þverfaglegri móttöku með bæklunarlækni, stoðtækjafræðingi, sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa. Tilgangurinn er að fylgjast markvisst með líkamlegu ástandi og hafa samráð um þörf fyrir hjálpartæki eða inngrip bæklunarlæknis. Móttökur eru haldnar á Æfingastöðinni á tveggja vikna fresti frá kl. 12:30-16:00. Guðbjörg Eggertsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með móttökunum en þjálfarar barnsins hafa milligöngu um tímapantanir.

Smelltu hér til að nálgast nánari upplýsingar um stoðkerfismóttökur.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati