Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Iðjuþjálfun
Iðjuþjálfar leggja áherslu á að efla færni sem tengist iðju barna. Með aukinni færni er barninu gert mögulegt að taka þátt í leik og daglegum viðfangsefnum sem hafa þýðingu fyrir það. Iðjuþjálfar vinna í nánu samstarfi við börn og ungmenni, fjölskyldur þeirra og aðra sem veita þeim þjónustu.
Iðjuþjálfun fer fram á Æfingastöðinni að Háaleitisbraut 13 og í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.
Þjónusta iðjuþjálfa:
- Eigin umsjá - klæðnaður, snyrting, borðhald
- Fínhreyfifærni - grip, handbeiting, vinnulag
- Félagsfærni - þátttaka, samskipti, sjálfsmynd
- Tómstundaiðja - virk þátttaka, áhugi, ánægja
- Skynjun - upplifun, viðbrögð, aðstæður
- Aðlögun umhverfis - skipulag, vinnuumhverfi, líkamsstaða
- Tölvuvinna - tjáskipti, forrit, sérbúnaður
- Hjálpartæki - aðlögun og þjálfun
Fréttir og viðburðir
Leit












