Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Þjónustuferlið

Beiðni um þjónustu á Æfingastöðinni þarf að koma frá lækni, t.d. heimilislækni eða barnalækni. Þegar beiðni hefur borist er hún staðfest með tölvupósti ásamt upplýsingum um starfsemi Æfingastöðvarinnar og hugsanlegan biðtíma.

Að biðtíma loknum hefur sjúkraþjálfari og/eða iðjuþjálfi samband við foreldra og býður þeim að koma í viðtal. Upplýsinga er aflað um sögu barnsins, heilsufar þess og núverandi færni. Í sameiningu er ákveðið að hverju skuli stefnt, skrifleg markmið eru sett og gerð þjónustuáætlun. Hún er því nokkurs konar vegvísir í þjónustunni við fjölskylduna. Það fer eftir aldri, aðstæðum og ósk foreldra hvort barnið kemur með í fyrstu heimsókn. Einnig er mögulegt að fyrsta heimsókn fari fram utan Æfingastöðvarinnar t.d. á heimilinu eða á leikskóla barnsins.

Oft þarf að skoða og meta ýmsa þætti nánar og er það gert með hinum ýmsu prófum og/eða athugunum. Þjálfun fer ýmist fram í einstaklingsþjálfun og/eða hópþjálfun. Börn og ungmenni með skaða í miðtaugakerfi hafa einnig kost á sjúkraþjálfun á hestbaki. Þjálfarar Æfingastöðvarinnar eru oft hluti af þverfaglegu þjónustuteymi barns.

Lengd þjálfunartímabils er mismunandi eftir börnum. Sum þeirra ná markmiðum sínum fljótt og þurfa ekki á frekari aðstoð að halda. Önnur setja sér ný markmið og koma í reglulegt eftirlit og/eða þjálfun. Þegar barnið hefur ekki lengur þörf fyrir þjónustu Æfingastöðvarinnar lýkur henni með útskrift.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati