Hreyfihvöt

Hópþjálfun fyrir börn (8-11 ára) sem þurfa að efla líkamlega færni og áhuga á hreyfingu.

 Markmið:

  • Efla grófhreyfifærni, úthald og styrk
  • Efla þátttöku og áhuga gagnvart hreyfingu
  • Hvetja til aukinnar hreyfingar

Námskeiðslýsing:
Þjálfunin er fjölbreytt og miðast við að efla undirstöðuatriði í líkamlegri færni, þar sem unnið er með boltafærni, hlaup, hopp, jafnvægi, samvinnu, leiki og leikskilning.

Hámark 6 þátttakendur í hverjum hóp.

Námskeiðinu lýkur með samráðsfundi foreldra og þjálfara.

Staður:
Æfingastöðin, Háaleitisbraut 13

Tími:
1 x í viku, 50 mín í senn. 8-10 skipti

Námskeið á haust- og vorönn 

Umsjón:
S. Hafdís Ólafsdóttir og Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir sjúkraþjálfarar.

 

 Til baka í yfirlit hópa