Líkamsrækt

 Hópþjálfun fyrir börn og unglinga 11-14 ára sem þurfa á styrktar-, úthalds- og liðleikaþjálfun að halda.

Markmið:

  • Efla grófhreyfifærni, þol og styrk
  • Efla sjálfstraust og sjálfstæði í líkamsræktarsal
  • Efla þátttöku og leikgleði í hóp
  • Hvetja til aukinnar hreyfingar  

Námskeiðslýsing:
Lögð er áhersla á styrktarþjálfun, þolþjálfun og vöðvateygjur.

Hópnum er skipt eftir aldri og kyni.

Hámark 8 þátttakendur í hverjum hóp.

Staður:
Tækjasalur Æfingastöðvarinnar, Háaleitisbraut 13

Tími:
1x í viku , 45 mínútur í senn, 10-14  skipti.

Námskeið á haust- og vorönn.

Umsjón:
Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir sjúkraþjálfari.


Til baka í yfirlit hópa