Við leitum að aðstoðarmanni sjúkraþjálfara í fullt starf

Við hjá Æfingastöðinni leitum að aðstoðarmanni sjúkraþjálfara í 100% starf frá 7. ágúst 2018. Óskað er eftir öflugum, jákvæðum starfsmanni sem er góður í mannlegum samskiptum og samvinnu. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu eða mikinn áhuga á starfi með börnum.

Starfið felur í sér aðstoð við þjálfun en meirihluti skjólstæðinga eru börn á öllum aldri. Einnig sér aðstoðarmaður sjúkraþjálfara um að veita skjólstæðingum almenna aðstoð og þrif í þjálfunarrými.

Æfingastöðin er sjálfstæð heilbrigðisstofnun, rekin af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra sjá nánar hér

Nánari upplýsingar veitir Áslaug Guðmundsdóttir yfirsjúkraþjálfari í síma 535-0900 eða á asa@slf.is. Umsóknarfrestur er til 1. maí.  

Áhugasamir fylli út starfsumsókn með því að smella hér.