Sölu Kærleikskúlunnar og Pottaskefils lýkur á föstudag

Sölu Kærleikskúlunnar og jólaóróans Pottaskefils lýkur næstkomandi föstudag, 16. desember. Sölutímabilið er 15 dagar, hófst 2. desember og stendur yfir til 16. desember. Enn er hægt að nálgast eintök af Kærleikskúlunni Sýn og Pottaskefli á næsta sölustað eða í netverslun okkar.

Sigurður Árni sem hannaði Kærleikskúluna Sýn færði Styrktarfélaginu fallega teikningu í gær. Teikningin skýrir út hugmyndina að baki kúlunni. Með því að gata kúluna opnar Sigurður Árni á milli tveggja heima. "Hugmynd verksins og kærleikur kúlunnar býr í gatinu. Í opinu er möguleiki á að tengjast öðrum heimi, setja sig í spor annarra og öðlast víðara sjónarhorn – nýja sýn," segir Sigurður Árni í lýsingu sinni á verkinu.