Við leitum að iðjuþjálfa í fullt starf

Við hjá Æfingastöðinni leitum að iðjuþjálfa í 100% starf. Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og góð samskiptahæfni er nauðsynleg.

 

Hlutverk Æfingastöðvarinnar er að efla börn og ungmenni með skerta færni og stuðla að virkri þátttöku þeirra í samfélaginu. Iðjuþjálfar Æfingastöðvarinnar vinna með dagleg viðfangsefni sem tengjast eigin umsjá, leik, námi og tómstundaiðju. Unnið er eftir hugmyndafræði um fjölskyldumiðaða þjónustu.

Umsóknarfrestur er til 1. desember nk. Hægt er að fylla út starfsumsókn með því að smella hér.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gerður Gústavsdóttir yfiriðjuþjálfi í síma 535-0900 eða á gerdur@slf.is.