Við leitum að starfsfólki til að taka þátt í fjölskyldubúðum í Vík

Við leitum að ábyrgðarfullu og drífandi fólki til að starfa við ný og spennandi sumarverkefni Reykjadals. Verkefnin eru unnin að frumkvæði félagamálaráðuneytisins sem viðbrögð við félagslegum áhrifum Covid- 19 faraldursins. Markmið verkefnanna er að bjóða börnum og ungmennum með fötlun og/eða sérþarfir upp á afþreyingu í sumar og rjúfa félagslega einangrun þeirra eftir þær erfiðu aðstæður sem sköpuðust í kjölfar útbreiðslu faraldursins.

Í Vík í Mýrdal ætlum við að hafa fjölskyldubúðir fyrir fjölskyldur fatlaðra barna. Hugmyndafræðin á bak við verkefnið byggir á norrænni fyrirmynd en bæði í Noregi og Svíþjóð eru til staðir sem fjölskyldum býðst að dvelja á í ákveðinn tíma og fá fræðslu, stuðning og njóta skemmtilegar samveru af ýmsu tagi. Markmiðið er að fjölskyldur fatlaðra barna fái tækifæri til hitta aðrar fjölskyldur í skemmtilegu umhverfi eftir krefjandi tíma sem skapaðist vegna Covid á vormánuðum. Yfirskrift búðanna er Hagnýt fræðsla, valdefling, samkennd og fjör!

Við leitum að starfsfólki til að sjá um skemmtidagskrá fyrir börnin og veita þá aðstoð sem fjölskyldurnar kunna að þurfa. 

Þetta er tilvalið tækifæri til að öðlast reynslu og taka þátt í skemmtilegu sumarstarfi. Við leitum að fólki sem hefur áhuga á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Tímabilið er um 5-6 vikur. Það er kostur ef umsækjandi getur hafið störf sem fyrst og unnið er út miðjan ágúst.

Við hvetjum sérstaklega nemendur á félags-, mennta- og heilbrigðisvísindasviði til að sækja. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.

Helstu verkefni:

Hæfniskröfur:

  • Aðstoð og umönnun við gesti
  • Skipulag á dagskrá
  • Ýmis tilfallandi verkefni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálstæði í starfi
  • Áhugi á að starfa með fólki
  • Nákvæmni og fagmennska í vinnubrögðum

 

Allar nánari upplýsingar veita Atli Lýðsson verkefnastjóri fjölskyldubúðanna og Hrefna Rós Matthíasdóttir markaðsstjóri

Sæktu um hér