Áslaug útskrifaðist með BSc. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1982. Fyrstu árin starfaði hún á Landspítalanum en 1986 var hún ráðin til Æfingastöðvarinnar þar sem hún hefur starfað síðan að undanskildum tveimur árum sem hún vann hjá Sjálfsbjörgu á Akureyri. Frá 1991 hefur hún eingöngu unnið með börn og unglinga og er nú starfsmaður á yngra teymi og sinnir mest þjálfun ungbarna.
Áslaug tók við starfi yfirsjúkraþjálfara 1. maí 2005. Hún lauk námi í Þjónustustjórnun frá Endurmenntun HÍ vorið 2008.
Björk útskrifaðist með BSc. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands vorið 2008. Sumarið eftir útskrift sá hún um áhættugreiningar með tilliti til heilbrigðismála hjá álverinu í Straumsvík. Hún hóf störf á Æfingastöðinni í október 2008.
Bríet útskrifaðist með BSc. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands vorið 2015 og hóf störf á Æfingastöðinni þá um sumarið. Bríet tók verknám sín í sjúkraþjálfun á Grensásdeild Landspítalans, Sjúkraþjálfun Garðabæjar, Blóðmeinadeild Landspítals við Hringbraut og Æfingastöðinni. Fyrir útskrift starfaði Bríet á Hrafnistu í Reykjavík.
Evelin lauk B.Sc prófi í iðjuþjálfunarfræði frá Háskólanum í Þyskalandi árið 2006 og Sensory Integration clinical training frá Háskóla í Los Angeles árið 2009.
Evelin hóf störf á Æfingastöðinni í febrúar 2017. Áður starfaði hún sem iðjuþjálfi í leikskóla í eitt ár. Þá starfaði hún í 9 ár með börnum, 0-12 ára, á iðjuþjálfunarstofu í Vín í Austurríki.
Fanney lauk B.Sc. prófi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri í júní 2007 og hóf störf hjá Æfingastöðinni í kjölfarið.
Gerður hefur verið yfiriðjuþjálfi á Æfingastöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra frá árinu 2001 en hún hóf störf á Æfingastöðinni árið 1987. Hún starfaði einnig sem iðjuþjálfi við Ullevål sykehús Oslo árin 1986 og 1987.
Gerður er með M.Sc. í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands (2012) og B.Sc. próf í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri (2005).
Gerður lauk Diploma í iðjuþjálfun frá iðjuþjálfaskólanum í Oslo 1986. Þá lauk hún Diplomaprófi í fræðslustarfi og stjórnun frá Uppeldis-og menntunarfræðideild Háskóla Íslands árið 2010.
Guðbjörg eða Gugga eins og hún er oftast kölluð, útskrifaðist með BSc í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1982. Hún lauk tveggja ára mastersnámi í heilbrigðisvísindum (cand.san.) við Háskólann í Osló 1998. Árin 2008-2011 stundaði hún nám við Námsbraut í Lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og lauk þaðan mastersprófi (MPh) í maí 2011. Guðbjörg er með sérfræðiviðurkenningu í barnasjúkraþjálfun.
Guðbjörg hefur víðtæka reynslu af sjúkraþjálfun barna. Hún vann fyrstu árin á Landakoti og Barnaspítala Hringsins en fluttist síðan til Noregs þar sem hún starfaði m.a. stofnun fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu, í skóla fyrir einstaklinga með heyrnaskerðingu, á barnadeild Ríkisspítalans og í heilsugæslunni þar sem hún vann með börnum inni á leikskólum, skólum og í heimahúsum. Síðustu fimm árin fyrir heimkomuna starfaði Guðbjörg á Hæfingar- og greiningarstöð ríkisins í Noregi. Hún hefur starfað á Æfingastöð SLF frá ársbyrjun 2001.
Hreyfihömlun barna hefur verið aðaláhugasvið Guðbjargar, m.a. börn með CP (heilalömun) og MMC (hrygg- og mænurauf) og hún hefur umsjón með þverfaglegum móttökum með bæklunarskurðlækni á vegum Æfingastöðvarinnar. Undanfarin ár hefur hún ásamt fleirum boðið hreyfihömluðum börnum upp á sjúkraþjálfun á hestbaki á vegum ÆSLF og lauk réttindanámi í Svíþjóð þar að lútandi sumarið 2007. Guðbjörg þýddi sænska CPUP (CP Uppföljning) eftirfylgnikerfið og hefur leitt innleiðingu þess á Æfingastöðinni.
Guðrún Ágústa lauk námi í sjúkraþjálfun frá HÍ árið 1996 og framhaldsnámi í sjúkraþjálfun barna frá Høgskolen í Osló árið 2006.
Guðrún Ágústa hóf störf á Æfingastöðinni haustið 2007.
Frá 1996 - 1999 og 2001 - 2002 starfaði Guðrún Ágústa á Endurhæfingardeild Landspítalans í Kópavogi þar sem vinna með fjölfatlaða var stærstur hluti starfsins. Árið 1999 starfaði hún hjá Sjúkraþjálfun Styrk og árið 2000 hjá Sjúkraþjálfun Íslands. Frá 2004 - 2007 vann Guðrún á barna - og kvennadeild Akershus Háskólasjúkrahúss í Noregi þar sem hún sinnti bæði börnum á spítalanum og göngudeildarþjónustu fyrir börn.
Gunnhildur lauk Bs. prófi í iðjuþjálfunarfræðum frá heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri árið 2011 og meistaraprófi í heilbrigðisvísindum frá sama skóla 2015. Gunnhildur hóf störf hjá Æfingastöðinni árið 2017. Áður starfaði hún sem iðjuþjálfi á barna og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) og sem aðstoðarmaður rannsókna við félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands.
Harpa lauk B.sc. prófi í iðjuþjálfun frá Fysio- og ergoterpapeut skolen í Holstebro í Danmörku árið 2002.
Hún hóf störf hjá Æfingastöðinni í janúar 2008. Áður starfaði hún í 6 mánuði á Dagvist MS, eitt ár á Reykjalundi og þrjú ár á Landspítala Háskólasjúkrahúsi Fossvogi.
Harpa útskrifaðist með B.Sc. gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands 2015. Eftir útskrift fór hún að vinna á Landspítalanum Fossvogi og vann þar í rúm 2 ár. Harpa hóf störf á Æfingastöðinni í janúar 2018.
Helga lauk prófi í iðjuþjálfun frá Skolen for ergo- og fysioterapeuter í Álaborg í Danmörku í desember 1987. Hún lauk sérskipulögðu námi til B.Sc prófs í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri árið 2005.
Helga hóf störf á Æfingastöðinni í maí 1988. Hún starfaði á Borgarspítalanum í byrjun árs 1988.
Hildigunnur lauk B.Sc prófi í íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013 og áætlar að ljúka meistaranámi í hreyfivísindum frá Háskóla Íslands vorið 2017.
Hildigunnur hefur starfað sem þjálfari frá 2013 og hóf störf hjá Æfingastöðinni í febrúar 2017.
Hildur útskrifaðist með BSc. gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1987 og hefur starfað síðan á Æfingastöðinni. Hún sinnir nær eingöngu fullorðnum en einnig mikið fötluðum ungmennum. Hildur hefur áhuga á öllu sem hægt er að nýta við meðferð og þjálfun.
Hólmdís lauk B.Sc prófi í iðjuþjálfunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2004 og MPH gráðu í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands árið 2011.
Hólmdís hóf störf á Æfingastöðinni árið 2005. Áður starfaði hún í eitt ár í Síðuskóla og Árholti skólavistun fyrir fötluð börn 10-16 ára á Akureyri. Veturinn 2012-2013 starfaði hún á Heilsugæslunni í Grafarvogi í meðferðarteymi barna í 50% stöðu og frá 2013 hefur hún starfað við kennslu í iðjuþjálfunarfræðum við Háskólann á Akureyri samhliða starfi á Æfingastöðinni.
Jóna Guðný útskrifaðist með BSc. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands vorið 2008 og hóf störf á Æfingastöðinni þá um sumarið. Síðustu tvö sumur fyrir útskrift starfað Jóna Guðný í sumarbúðum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal.
Samhliða starfi sínu á Æfingastöðinni kennir Jóna Guðný bakleikfimi hjá Breiðu bökunum og hefur gert síðastliðin ár.
Jóna lauk B.Sc prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1980. Hún hóf störf á Æfingstöðinni árið 2001
Jóna starfaði í fyrstu á lungna-, öldrunar- og endurhæfingardeildum á Reykjalundi og í Kalmar í Svíþjóð. Hún starfaði í 6 ár í sjúkraþjálfun Sjálfsbjargar (nú Stjá). Jóna starfaði sem sjúkraþjálfari í Uppsala í Svíþjóð, fyrst tvö ár á Akademiska sjúkrahúsinu á ýmsum deildum og síðar í 10 ár á heilsugæslustöðvum. Á Æfingastöðinni sér Jóna m.a. um þjálfun parkinsonsjúklinga.
Jóna hefur réttindi til að stunda nálastungur.
Jónína er í fæðingarorlofi
Jónína lauk B.sc. prófi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri vorið 2008. Hún hóf störf á Æfingastöðinni haustið 2010 en starfaði áður á Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Jónína lauk B.Sc. prófi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Hún hóf störf á Æfingastöðinni vorið 2001.
Jórunn útskrifaðist frá HÍ með BSc gráðu í sjúkraþjálfun 1987. Hún hóf störf á Æfingastöðinni árið 2000.
K. Freyja lauk B.Sc prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1989. Hún hefur lokið mastersgráðu í barnasjúkraþjálfun frá Hahnemann University, Philadelphia, Usa og fengið sérfræðiviðurkenningu í barnasjúkraþjálfun.
Freyja hóf störf á Æfingastöðinni árið 1991. Hún starfaði árin 1989 - 1990 á Landakotsspítala, árin 1990 - 1991 í sjúkraþjálfunarstöð á Akranesi og um tíma á árunum 1993 - 1995 í sjúkraþjálfunarstöðvum í Garðabæ og Grindavík.
Kolbrún starfaði á Æfingastöðinni frá því hún útskrifaðist sem sjúkraþjálfari vorið 2006 og þar til hún flutti til Noregs haustið 2007. Í Noregi starfaði hún sem sjúkraþjálfari barna og unglinga, meðal annars í þverfaglegu teymi á taugadeild barna við Ullevaal sjúkrahúsið í Oslo. Hún starfaði einnig í heilsugæslunni í tengslum við ungbarnaeftirlit, auk sjúkraþjálfunar barna og unglinga í leikskólum, skólum og í heimahúsum.
Kolbrún er nú flutt aftur heim og hóf aftur störf hér á Æfingastöðinni 1.febrúar.
Pétur útskrifaðist með B.Sc. gráðu frá H.Í. árið 1988. Hann hóf þegar störf hjá Æfingastöðinni og starfaði þar óslitið fram til 1999. Starfaði hann hjá Sjúkraþjálfun Afl í eitt ár en byrjaði aftur hjá Æfingastöðinni haustið 2000.
Pétur sinnir þjálfun eldri barna/unglinga auk fullorðinna.
Rakel lauk B.Sc prófi frá Háskólanum á Akureyri sumarið 2015 og hóf í kjölfarið störf á Æfingastöðinni.
Rósa útskrifaðist með B.Sc. gráðu í sjúkraþjálfun frá HÍ árið 1981. Hún starfaði fyrstu tæpu tvö árin á Æfingastöðinni og kynntist þar sjúkraþjálfun barna. Hún vann síðan á Barnadeild Landspítalans í 10 ár við þjálfun og eftirlit ungra barna. Eftir það hefur hún starfað á Æfingastöðinni eða frá 1995 með börnum og unglingum. Rósa vinnur einnig á Lyngási sem Styrktarfélag Ás rekur og sinnir þar þjálfun ungra barna með fjölfötlun.
Hafdís útskrifaðist frá HÍ með B.Sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 1983. Hún hefur starfað á Æfingastöðinni síðan 1997 en vann áður á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað í tíu ár. Hafdís hefur síðustu ár eingöngu sinnt sjúkraþjálfun barna og unglinga. Hún hefur starfað í Öskjuhlíðaskóla frá hausti 2001 og er einn af stjórnendum hópþjálfunar barna hér á Æfingastöðinni.
Sæunn lauk B.Sc prófi frá Háskólanum á Akureyri sumarið 2015 og hóf í kjölfarið störf á Æfingastöðinni. Sumrin 2010-2013 starfaði hún í sumarbúðunum í Reykjadal.
Valrós lauk prófi í iðjuþjálfun frá Skolen for ergo- og fysioterapeuter í Óðinsvéum í Danmörku árið 1982. Hún lauk sérskipulögðu námi til B.Sc prófs í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri 2005.
Valrós hóf störf á Æfingastöðinni árið 1989. Hún hefur frá árinu 2001 starfað sem staðgengill yfiriðjuþjálfa.
Valrós starfaði árin 1982-1987 á Endurhæfingadeild Borgarspítalans