Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

ALGENGAR SPURNINGAR

HVAR ER REYKJADALUR?
Reykjadalur er í Mosfellsdal um 20 mínútna akstur frá Reykjavík. Ekið er Vesturlandsveginn í gegnum Mosfellsbæ, þegar komið er út úr bænum er beygt til hægri inn á afleggjarann til Þingvalla. Reykjadalur er í fimmta botnlanga til hægri, en sá botnlangi er merktur ,,Æsustaðir".

HVENÆR OG HVAR Á AÐ SÆKJU UM?
Umsóknarfrestur er til 1. mars fyrir sumardvöl og til 1. september fyrir vetrardvöl. Umsóknum þarf að skila á skrifstofu félagsins Háaleitisbraut 13 fyrir þann tíma. Umsóknareyðublað má nálgast með því að smella hér.

HVENÆR OG HVAR Á AÐ MÆTA Í SUMARDVÖLINA?
Mæting er í Reykjadal á miðvikudögum milli kl. 16:00 og 18:00.

HVENÆR OG HVAR Á AÐ SÆKJA SUMARGESTI?
Í Reykjadal milli kl. 11:00 og 12:00.

HVAÐ Á AÐ TAKA MEÐ AF FATNAÐI Í SUMARDVÖL?
Smellið á: "Fatalisti"
Við minnum á að þvegið er á hverjum degi.

HVER ER FORSTÖÐUMAÐUR OG HVAR NÆ ÉG Í HANN?
Forstöðumaður Reykjadals eru Sólveig Hlín Sigurðardóttir.
Símatími hennar er frá kl. 16-18 þriðjudaga og fimmtudaga yfir vetrartímann, síminn er 699 5466. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið reykjadalur@slf.is. Þegar starfsemi er í Reykjadal næst samband í síma 566 6234, en einnig er hægt að hringja á skrifstofu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í síma 535 0900.

HVERJIR GETA KOMIÐ OG DVALIÐ Í REYKJADAL?
Reykjadalur er opinn öllum þeim sem ekki geta notið þess að sækja aðrar sumarbúðir vegna fötlunar sinnar.
Í Reykjadal koma börn og ungmenni alls staðar að af landinu. Flest eru á aldrinum 6 ára til tvítugs. Einnig koma nokkrir á aldrinum 20 - 23 ára.

HVAÐ KOSTAR SUMARDVÖL?
Gert er ráð fyrir að foreldrar greiði svipaða upphæð og foreldrar ófatlaðra barna greiða fyrir sumardvöl í almennum sumarbúðum.

HVAÐ KOSTAR HELGARDVÖL AÐ VETRARLAGI?
Upplýsingar fást á skrifstofu SLF s. 535-0900.

HVERT ER NETFANG REYKJADALS?

Netfang Reykjadals er reykjadalur@slf.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati