Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR REYKJADALS
23.12.2011
Gleðilega hátíð!
Starfsfólk Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og Æfingastöðvarinnar óskar ykkur gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Þökkum kærlega fyrir samskiptin og stuðninginn á liðnum árum!
Skrifstofa Styrktarfélagsins og Æfingastöðin verða lokaðar á milli jóla og nýárs og 2. janúar. Opnum aftur kl. 8, þriðjudaginn 3. janúar.
20.12.2011
Sölunni lokið
Nú er sölu Kærleikskúlunnar og Leppalúða lokið. Við þökkum kærlega góðar viðtökur, stuðningur ykkar er okkur ómetanlegur.
20.12.2011
Jólaball CP félagsins og Æfingastöðvarinnar
Jólaball CP félagsins og Æfingastöðvarinnar verður haldið í Safnaðarheimili Grensáskirkju, Háaleitisbraut 66, fimmtudaginn 28. desember kl. 15.30.
26.11.2011
Leppalúði prýðir Óslóartréð
Sunnudaginn 27. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu verða jólaljós Óslóartrésins við Austurvöll tendruð. Tréð er að þessu sinni prýtt Leppalúða, jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2011.
Leit












