Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FYRIR FORELDRA
Reykjadalur
Árlega dveljast í Reykjadal um 200 börn alls staðar að af landinu, flest þó af Reykjavíkur- og Reykjanessvæðinu.
Frá maílokum fram í miðjan ágúst er boðið upp á sumardvöl og yfir vetrarmánuðina er boðið upp á helgardvöl. Hvert barn getur dvalið í eina til tvær vikur yfir sumartímann og eina til tvær helgar yfir vetrartímann.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og vega þar leikir og ýmiskonar útivera þungt. Sundlaug er á staðnum ásamt heitum potti og njóta gestirnir þess mjög að svamla um í heitu vatninu.
Hverjir geta sótt um Laugaland og hverjir um Reykjadal?
Allir einstaklingar sem eiga við fötlun að stríða og eru á aldrinum 5-23 ára geta sóst eftir dvöl hvort sem um ræðir sumar –eða vetrardvöl. Reykjadalur er mjög þétt setinn og ekki er alltaf hægt að koma öllum að og afar mismunandi er hvaða hópar fyllast hverju sinni. Við hvetjum hins vegar alla til að sækja um fyrir barn sitt / börn sín ef þeir hafa áhuga á að nýta sér þennan frábæra stað.
Laugaland í Holtum hefur hins vegar miðað að því að sinna börnum á aldrinum 6-16 ára sem eru nemendur í Öskjuhlíðarskóla.
Hverjir fá vinnu í Reykjadal?
Reykjadalur hefur í gegnum tíðina lagt mikinn metnað í að ráða hæft og drífandi starfsfólk.
Starfsfólkið á staðnum er á aldrinum 17-28 ára. Þeir sem hafa lokið framhaldsskólamenntun, eru flestir að mennta sig á uppeldis- eða heilbrigðissviði. Forstöðumaður sér um atvinnuviðtöl og ráðningar. Undanfarin ár hefur verðið mikil aðsókn í öll þau störf sem í boði eru. Það hefur gert það að verkum að aðeins þeir allra hæfustu eru ráðnir og því mikið af ungu og efnilegu fólki sem þarf að vísa frá. Forstöðumaður tók þá ákvörðun fyrir nokkrum árum að ráða nánast eingöngu ungt fólk til starfa. Sú ákvörðun að ráða eingöngu ungt fólk byggir á því að við viljum að Reykjadalur sé staður fullur af orku og lífsgleði. Við teljum að unga fólkið sé tilbúið til þess að leggja allt á sig til að gleðja þá gullmola sem hjá okkur dvelja. Þessum ungu starfsmönnum eru kenndar þær grundvallarreglur sem atvinnumarkaðurinn setur öllum á vinnumarkaði. Á sama tíma erum við að vonast eftir því að við getum haft mótandi áhrif á starfsmenn sem hafa áhuga á að taka að sér störf sem þessi og með því hvatt fleiri til að velja sér eins frábæran starfsvettvang og þennan.
Hvernig er undirbúningurinn fyrir starfsfólkið?
Starfsfólki Reykjadals er ekki kastað út í djúpu laugina og ætlast til að þeir bjargi sér í jafn ábyrgðar fullri vinnu. Áður en starfsemin hefst eru allir starfsmenn skyldugir til að sitja þriggja daga námskeið þar sem þeim er veitt grundvallar fræðsla um ýmislegt sem snertir starfið.
Forstöðumaður Reykjadals sér um námskeiðin með aðstoða ýmissa gestafyrirlesara. Á námskeiðunum er farið yfir öll helstu frávik, kennd eru grundvallaratriði í samskiptum við gesti, foreldra og samstarfsfólk, farið er yfir almenn atriði sem snerta daglegt starf eins og matartíma, hvíld og aðstoð við daglegar athafnir. Kennd er skyndihjálp, viðbrögð við krömpum, auk þess sem kennt er á sondur og hjálpartæki. Ýmsir gestafyrirlesarar koma og fara yfir mikilvægi góðra samskipta við foreldra sem við teljum vera mjög mikilvægan þátt, einnig eru starfsmenn fræddir um hvernig gott er að takast á við það álag sem starfinu getur fylgt og hvernig hægt sé að bregðast við sorg.
Starfsmenn sitja morgunfund í hálftíma á hverjum degi og þar fer forstöðumaður yfir ýmis atriði er snerta gesti staðarins. Farið er í gegnum umsóknir gesta, starfsmenn eru fræddir um þau atriði sem hafa ber í huga með tilliti til þess hóps sem á staðnum dvelur og margt fleira. Á föstudögum er svo gjarnan tekið fyrir eitthvað ákveðið atriði sem talin er þörf á að fræða starfsmenn betur um. Við teljum okkur vera að veita starfsmönnunum fræðslu á hverjum degi sem gerir það að verkum að þeir þroskast og vaxa í starfi frá einum degi til annars. Starfsmennirnir hafa alltaf aðgang að forstöðumanni og vaktstjórum ef einhverjar spurningar vakna eða ef þeir eru óöryggir með eitthvað.
Mikil áhersla er lögð á að starfsmenn sýni sjálfstæð vinnubrög en á sama tíma ber þeim að vinna eftir ákveðnum ramma. Áður en starfið hefst er búið að móta dagskrá fyrir hvern einasta dag sumarsins. Dagskráin gefur starfsmönnunum hins vegar færi á því að nota hugmyndaflugið og það er markmið staðarins að kenna starfsmönnunum að leggja sig alltaf alla fram, fullkomna þannig dvöl gestanna svo þeir nái því besta fram í sjálfum sér. Dagarnir verða því alltaf eins skemmtilegir og starfmennirnir vilja hafa þá, því það eru þeir sem þurfa að sjá til þess að frumþörfum allra sé sinnt og að allir fari að sofa með bros á vör. Það er okkar markmið að allir sem fara heim úr Reykjadal fari með bros á vör og með góðar minningar.
Dagbókin
Allir dvalargestir fara heim með einskonar minningabók eða dagbók eins og við köllum hana. Starfsmaður eða gesturinn sjálfur skráir í dagbók á hverjum degi allt það skemmtilega sem gerðist yfir daginn. Dagbókin er síðan skreytt með þeim myndum sem hafa verið teknar, auk listaverka og fleira sem viðkomandi gestur hefur dundað sér við að búa til.
Markmið dagbókarinnar er að leyfa foreldrum að sjá og upplifa með barni sínu það sem barnið var að aðhafast í þann tíma sem það dvaldist hjá okkur. Auk þess erum við að stuðla að því að minningin endist sem lengst og berist með heim til fjölskyldunnar.
Nokkrar algengar spurningar
HVAR ER REYKJADALUR?
Reykjadalur er í Mosfellsdal um 20 mínútna akstur frá Reykjavík. Ekið er Vesturlandsveginn í gegnum Mosfellsbæ, þegar komið er út úr bænum er beygt til hægri inn á afleggjarann til Þingvalla. Reykjadalur er í fimmta botnlanga til hægri, en sá botnlangi er merktur ,,Æsustaðir".
HVENÆR OG HVAR Á AÐ MÆTA Í SUMARDVÖLINA?
Mæting er í Reykjadal á miðvikudögum milli kl. 16:00 og 18:00.
HVENÆR OG HVAR Á AÐ SÆKJA SUMARGESTI?
Í Reykjadal milli kl. 11:00 - 12:00.
HVAÐ Á AÐ TAKA MEÐ AF FATNAÐI Í SUMARDVÖL?
Smellið á: "Fatalisti"
Við minnum á að þvegið er á hverjum degi.
HVER ER FORSTÖÐUMAÐUR OG HVAR NÆ ÉG Í HANN?
Forstöðumaður er Sólveig Hlín Sigurðardóttir. Símatími forstöðumanns er frá kl. 16-18 þriðjudaga og fimmtudaga yfir vetrartímann, síminn er 699-5466. Utan þess tíma er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið reykjadalur@slf.is. Þegar starfsemi er í Reykjadal næst samband í síma 566 6234, en einnig er hægt að hringja á skrifstofu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í síma 535 0900.
HVERJIR GETA KOMIÐ OG DVALIÐ Í REYKJADAL?
Reykjadalur er opinn öllum þeim sem ekki geta notið þess að sækja aðrar sumarbúðir vegna fötlunar sinnar.
Í Reykjadal koma börn og ungmenni á aldrinum 5 til 23 ára alls staðar að af landinu.
HVAÐ KOSTAR SUMARDVÖL?
Gert er ráð fyrir að foreldrar greiði svipaða upphæð og foreldrar ófatlaðra barna greiða fyrir sumardvöl í almennum sumarbúðum.
Hægt er að greiða á skrifstofu SLF eða hringja í síma 535 0900 og greiða með greiðslukorti eða fá sendan gíróseðil.
HVAÐ KOSTAR HELGARDVÖL AÐ VETRARLAGI?
Upplýsingar fást á skrifstofu félagsins í síma 535-0900.
HVERT ER NETFANG REYKJADALS?
Netfang Reykjadals er reykjadalur@slf.is
HVAR FINN ÉG UMSÓKNAREYÐUBLAÐIÐ?
Þú getur nálgast það á forsíðunni, einnig undir ,,Sumardvöl" og ,,Helgardvöl", eða smella hér vegna sumardvalar.
Leit












