Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
SUMARDVÖL
Reykjadalur
Í Reykjadal koma fötluð börn og ungmenni alls staðar að af landinu. Flest eru á aldrinum sex ára til tvítugs. Einnig koma nokkrir á aldrinum tuttugu til tuttugu og þriggja ára (miðað við fæðingarár). Í upphafi var þjónusta við hreyfihömluð börn megið markmið starfseminnar, en í dag er Reykjadalur opinn öllum þeim börnum sem ekki geta notið þess að sækja aðrar sumarbúðir, s.s. þroskaheftum, einhverfum og geðfötluðum.
Dvalartími
Börn á aldrinum fimm til nítján ára sem búa í heimahúsi eiga almennt rétt á tveggja vikna dvöl í Reykjadal. Þegar börn dvelja í fyrsta skipti í Reykjadal stendur þeim ein vika til boða. Ungmenni á aldrinum tuttugu til tuttugu og þriggja ára fá úthlutað einnar viku dvöl.
Öll þau börn sem nýta sér búsetuúrræði s.s. sambýli, eiga kost á einnar viku dvöl.
Laugaland
Sumarbúðirnar í Laugalandi standa yfir í 6 vikur og koma börnin í 1-2 vikur í senn. Öll aðstaða er til fyrirmyndar. Sundlaug er á staðnum með rennibraut og þremur heitum pottum. Íþróttahús í fullri stærð sem og körfuboltavellir og gervigrasvöllur fyrir tuðruspark. Stór leikkastali er á svæðinu, sandkassi og rólur. Engum ætti því að leiðast á Laugalandi og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Margt er brallað á sumrin m.a. er farið daglega í sund, hinir frægu sumardvalarleikar eru háðir og einnig er farið á hestbak að Hestheimum. Í hverri viku er svo haldið í óvissuferð og haldið á vit ævintýranna. Einnig er farið í fjöru á Stokkseyri þar sem tánum er dýft í saltan sjó og skeljar og krabbar skoðaðir, Landmannalaugar heimsóttar og margt fleira.
Fyrir hverja
Sumarbúðirnar að Laugalandi eru ætlaðar börnum og ungmennum sem sækja Öskjuhlíðarskóla. Fyrstu árin var rekstur Laugalands í höndum Foreldra- og styrktarfélags Öskjuhlíðarskóla, en er nú í höndum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
Umsókn fyrir sumardvöl skal skilað inn fyrir 1. mars ár hvert.
Umsóknareyðublöð vegna sumardvalar - til útprentunar:
Gjaldskrá
Gert er ráð fyrir að foreldrar greiði svipaða upphæð og foreldrar ófatlaðra barna greiða fyrir sumardvöl í almennum sumarbúðum. Upplýsingar um verð má fá á skrifstofu félagsins.
Fréttir og viðburðir
6.9.2010
Útitónleikar í Reykjadal
Leit










