Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

SUMARHÁTÍÐ

Hringur tekur lagið

Sumarlokahátíð Reykjadals var haldin sunnudaginn 16. ágúst í íþróttahúsi staðarins. Á hátíðina var öllum dvalargestum boðið ásamt foreldrum og öðrum velunnurum staðarins. Starfsmenn Reykjadals voru með söng - og dansatriði. Eftir frábær skemmtiatriði gæddu gestir sér á ljúffengum veitingum og lauk síðan skemmtuninni með stórskemmtilegum dansleik þar sem hljómsveitin BUFF lék fyrir dansi. Um það bil 350 manns skemmtu sér konunglega á hátíðinni.

Starfsmenn Reykjadals þakka öllum sem lögðu okkur lið við að halda hátíðina kærlega fyrir aðstoðina og þakkar öllum gestum sumarsins fyrir ógleymanlegar stundir.

Þau fyrirtæki sem styrktu sumarhátíðina eru Vífilfell, Emmess ís, Ásbjörn Ólafsson, Mosfellsbakarí, K.K. Karlsson, Bakarameistarinn, Jói Fel., Iðnmark, Innnes, Nói Siríus, Þykkvabæjar, Kjörís, Góa, Danól, Kaffitár, Brosbolir og O. Johnson og Kaaber.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati