Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
LAUGALAND Í HOLTUM
Gleði - Árangur - Ævintýri
Laugaland í Holtum er grunnskóli í grennd við Hellu. Þar hafa verið starfræktar sumarbúðir fyrir nemendur Öskjuhlíðarskóla frá árinu 2001. Sumarbúðirnar standa yfir í 6 vikur og koma börnin í 1-2 vikur í senn. Fyrstu árin var reksturinn í höndum Foreldra- og styrktarfélags Öskjuhlíðarskóla, en nú er reksturinn í höndum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
Um Laugaland
Öll aðstaða er til fyrirmyndar. Sundlaug er á staðnum með rennibraut og þremur heitum pottum. Íþróttahús í fullri stærð sem og körfuboltavellir og gervigrasvöllur fyrir tuðruspark. Stór leikkastali er á svæðinu, sandkassi og rólur. Engum ætti því að leiðast á Laugalandi og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Margt er brallað á sumrin m.a. er farið daglega í sund, hinir frægu sumardvalarleikar eru háðir og einnig er farið á hestbak að Hestheimum. Í hverri viku er svo haldið í óvissuferð og haldið á vit ævintýranna. Einnig er farið í fjöru á Stokkseyri þar sem tánum er dýft í saltan sjó og skeljar og krabbar skoðaðir, Landmannalaugar heimsóttar og margt fleira.
Starfsmenn
Starfsmenn á Laugalandi eru rúmlega 20 og koma úr ýmsum áttum m.a kennarar, söngnemar, tónlistarmenn, læknanemar og hagfræðingar. Starfsfólkið í sumarbúðunum í Laugalandi hefur flest allt reynslu af vinnu með fötluðum og hefur unnið hér sumar eftir sumar enda margt sem togar í hér í sveitasælunni. Umsjónarmaður Laugalands er Sólveig Hlín Sigurðardóttir.
Á meðan að starfsemi er í gangi yfir sumartímann er hægt að hafa samband í vaktsímann: 8934044.
Daglegt líf á Laugalandi
Eðlilegur dagur í Laugalandi fer þannig fram að morgunmatur er kl.09:00. Eftir það fylgja krakkarnir þeirri dagskrá sem þau hafa valið sér kvöldið áður. Dagskráin felur meðal annars í sér sundferðir, gönguferðir, hestbak, ratleiki, smíðavöll, íþróttamót, fjársjóðsleit og þannig mætti lengi telja.
Hádegismatur er kl.12:00 og að honum loknum heldur dagskráin áfram. Aðalatriðið er að vera saman og skemmta sér sem hópur. Seinni part dagsins, eða eftir kaffið er einnig margt brallað.
Allir gestir Laugalands gera dagbók þar sem skrifað er um ævintýri hvers dags og límdar inn myndir. Þessar bækur fylgja svo krökkunum heim og þá geta fjölskyldur og vinir rifjað með þeim upp góðar minningar úr Laugalandi.
Eftir vel heppnaðan dag er auðvitað snæddur kvöldverður og að lokum er kvöldvaka þar sem krakkarnir taka þátt í söngvakeppni, tískusýningu, leikritum, danskeppnum og fleiru. Milli 20:30 til 22:00 er svo farið í háttinn og sofna allir þreyttir og glaðir.
Reiðtúrar, ratleikir og náttfatapartí
Eftirfarandi er tekið úr grein sem birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 30. apríl 2005. Greinin er eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is
"Vinkonurnar Ásdís Ásgeirsdóttir og Þórkatla Eiríksdóttir eru skólasystur úr Öskjuhlíðarskóla og harðákveðnar í að láta sig ekki vanta í sumardvölina þetta árið. Þeim finnst spennandi að fá að gista annars staðar en heima hjá sér og gaman að vera í fríi með vinum sínum. "Við erum alltaf að gera eitthvað skemmtilegt í sumardvölinni, til dæmis fáum við að fara á hestbak en mér finnst það æðislega gaman og ég get farið alveg ein á hestbak," segir Ásdís stolt en Þórkötlu finnst meira gaman að teyma hestana og klappa þeim. "Svo er hundur þarna og hann er mikill vinur okkar og við leikum okkur oft við hann. Við förum líka í dýragarðinn Slakka í Laugarási og þar eru alls konar dýr," segja þær vinkonurnar sem báðar eru miklir dýravinir. Þórkatla á kisu sem heitir Mjónalísa en Ásdís á páfagauk sem heitir Krúsi, eins og hákarlinn í bíómyndinni um Nemó."
"Í sumardvölinni leika krakkarnir sér mikið úti í náttúrunni og það finnst stelpunum frábært. "Við förum í gönguferðir og tökum með okkur nesti sem við borðum úti, við förum stundum í ratleik og það er allt í lagi þótt maður vinni ekki. Svo förum við oft í sund og keppum um það hver er fljótastur að renna sér niður vatnsrennibrautina." Þau hafa líka kvöldskemmtanir þar sem þau sjá sjálf um skemmtiatriðin og Ásdís samdi til dæmis leikrit um Rauðhettu sem sett var á svið. "Við höldum líka diskótek og þá dansa ég rokk við strákana," segir Þórkatla og játar að hún sé svolítið skotin í einum þeirra. "Og svo eru náttfatapartí og þá poppum við og horfum á myndband." Þær segjast ekki sakna mömmu og pabba neitt sérstaklega mikið þótt þær fari að heiman í svona langan tíma. "Við fáum stundum smáheimþrá en það lagast fljótt, og mig dreymir stundum Pétur og úlfinn," segir Þórkatla."
"Krakkarnir í Öskjuhlíðarskóla eiga síður vini í hverfinu þar sem þau búa af því að þau þurfa að sækja skóla sem er annars staðar. Eins komast þau síður en önnur börn út að leika. Einmitt þess vegna er sumardvölin svo dýrmæt fyrir þau, þar komast þau í frí með vinum sínum."
Um heimavistarskólann
Árið 1957 var ákveðið að byggja heimavistarskóla í samvinnu þriggja hreppa, Ásahrepps, Holtahrepps og Landmannahrepps. Staðsetning var ákveðin Laugaland í Holtum. Kennsla hófst að Laugalandi 9. desember 1958, en húsið var fullbúið 1962. Árið 1977 var byggt við skólann og bættist þá við bókasafn, eldhús og borðsalur, íþróttahús með búningsaðstöðu, aðstaða fyrir húsvörð og skrifstofur hreppanna sem byggðu húsið.
Sex starfsmannaíbúðir eru að Laugalandi í eigu Ásahrepps og Rangárþings ytra.
Fréttir og viðburðir
6.9.2010
Útitónleikar í Reykjadal
Leit










