Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Dagbók Laugalands

Vikan 16.-23.júlí

Þá er sumarbúðunum í Laugalandi lokið þetta árið og síðasta holl að fara heim á morgun. Það er margt búið að bralla þessa síðustu viku enda hefð fyrir því að fara í ferðalög o.fl. í þessari viku.

Vikan hófst á hefðbundin hátt, sundi og bingói en strax á þriðjudag var farið í fjöruferð við mikla gleði sumarbúðargesta. Óli brunaði á Eyrarbakka þar sem við kíktum á krabba og fleira sem tengist sjónum. Á miðvikudag var farið á Hestheima í síðasta skiptið og viljum við þakka þeim kærlega fyrir móttökurnar í sumar sem hafa verið frábærar. Á fimmtudag var svo óvissuferðin ógurlega og var þá haldið sem leið lá upp í Landmannalaugar. Veðrið var frábært og var gengið inn í Grænagil og útsýnisins notið. Eftur gönguna var grillað og svo haldið heim. Á laugardag var svo farið í fjársjóðsleit og enn og aftur höfðu krakkarnir upp á honum. Ótrúlega lunkin! Eftir fundinn var farið i sparifötin, sprautað á sig ilmvatni og haldið í lokakvöldverðin sem er alltaf afar hátíðlegur hérna í Laugalandi. Brenna var svo um kvöldið, brekkusöngur og að lokum ball þar sem dansað var fram eftir kvöldi.

Við þökkum öllum sem hafa aðstoðað okkur í sumar og sérstaklega krökkunum fyrir komuna.

Kveðja starfsfólk Laugalands

Myndir

 

Vikan 9.-16.júlí

Tíminn flýgur hérna á Laugalandi enda mikið fjör hjá okkur. 5. viku er nú lokið og síðasta vikan gengin í garð. Það var margt brallað í síðustu viku m.a. Slakkaferð og hestbak sem vekur alltaf mikla lukku. Íþróttaleikarnir voru á fimmtudaginn þar sem hraustlega var tekið á því og svo var draugahús um helgina. Þar voru nokkrir sem fengu hressilega gæsahúð.

Á laugardagskvöldið var svo kvöldvaka þar sem allir stigu á stokk og voru með glæsileg skemmtiatriði. Við förum nú inn í síðustu vikuna með bros á vör og þökkum öllum fyrir vikuna sem leið

Kveðja starfsfólk Laugalands

Myndir

 

Vikan 2. júlí-9.júlí

Þá er fjórðu viku lokið og síðasta holl sumarsins komið í Laugaland. Það var margt brallað hér í viku 4 og upplifðu krakkarnir mörg ævintýrin. Á mánudaginn kíkti Bingó-Binni í heimsókn og las tölur kvöldsins fyrir okkur á sinn skemmtilega hátt. Á þriðjudaginn átti að fara í fjársjóðsleit en það rigndi svo mikið að krakkarnir slógu því á frest og undu sér við leik og störf innan dyra þann daginn. Á miðvikudag var farið í Hestheima og svo á fimmtudag kom Óli bílstjóri enn eina ferðina til okkar en að þessu sinni fór hann með okkur í fjöruferð. Vakti það mikla lukku hjá krökkunum og skemmtu sér allir konunglega við að veiða síli og vaða í sjónum. Á föstudag var svo komið blíðskaparveður og því tilvalið að fara í fjársjóðsleit. Krakkarnir gengu á lagið og fundu fjársjóðinn en þá vildi ekki betur til en svo að Kolbeinn Kapteinn mætti á svæðið og neitaði að láta hann af hendi. Að endingu samþykkti hann þó að gera það með því skilyrði að allir krakkarnir lofuðu að koma aftur í sumardvölina að ári og leita að fleiri fjársjóðum. Á laugardaginn var svo lögregluskóli hjá krökkunum og kom Lögreglan frá Hellu í heimsókn og sýndi bílinn og ræddi um lögreglustörf.

Við þökkum kærlega fyrir vikuna krakkar

Kveðja Starfsfólk Laugalands

Myndir

Vikan 25. júní-2. júlí

Tíminn flýgur hér á Laugalandi en nú er þriðju viku að ljúka hjá okkur hérna. Nokkrir krakkar fóru heim í dag og þökkum við þeim kærlega fyrir dvölina í vikunni. Ný andlit birtust í staðin og bíða allir spenntir eftir vikunni sem er framundan.

Í síðustu viku gekk á ýmsu en á mánudaginn var farið í singstar. Fagrir tónar léku um húsið og var stemmningin svakaleg. Á þriðjudag var farið ratleik sem að þessu sinni innihélt erfiðar þrautir eins og ógéðs-drykk. Það gekk ekki öllum jafnvel að koma honum niður. Á miðvikudag var farið í Hestheima og á fimmtdaginn var það Slakki sem var heimsóttur. Um helgina var svo mikið sprell, íþróttaleikar og skemmtileg kvöldvaka þar sem m.a. var leikið leikrit og sungið nokkur lög.

Við þökkum öllum kærlega fyrir vikuna

Kveðja starfsfólk Laugalands

Myndir

Vikan 18.-25. júní

Viku 2 er þá lokið í sumardvöl og fengum við loksins sólina sem búið var verið að bíða eftir lengi. Á sunnudaginn fóru nokkrir krakkar heim og nýjir komu í staðinn. Þau fengu góðar móttökur hjá krökkunum sem fyrir voru og náðu allir vel saman. Á mánudeginum drifum við okkur í heljarinnar Tazan-leik. Sveifluðu krakkarnir sér um í köðlum í salnum og skemmtu sér konunglega. Á þriðjudeginum bárust svo af því fregnir að fjársjóður væri falinn við Laugaland. Krakkarnir létu ekki segja sér það tvisvar og drifu sig út að leita að honum. Þau fundu vísbendingar sem leiddu þau að miklum fjársjóði sem fannst í rjóðri í nágrenni skólans. Miðvikudagurinn var svo notaður í að heimsækja Hestheima öðru sinni og var hestum og hundum klappað duglega. Á fimmtudaginn var víkingaspilið Kubb tekið fram og sýndu nokkrir snilldartakta í því spili.

Á föstudaginn kom svo Óli bílstjóri og sótti okkur og keyrði okkur i Slakka. Það var mikið fjör að vanda og ekki sakaði að sólin skein skært þann daginn. Var því ákveðið að stoppa í Brautarholti á heimleiðinni og kíkt á leikvöllinn sem þar er. Fallhlífin var með í för og var  hún óspart notuð með krökkunum. Laugardagurinn fór svo í íþrótta- og sundleika þar sem ný hraðamet voru sett í rennibrautarkeppninni. Kvöldvaka var svo um kvöldið með söngatriðum, dansi og sprelli. Við þökkum kærlega fyrir vikuna krakkar

Kveðja starfsfólk Laugalands

 Myndir

Vikan 11.-18. júní

Þá er fyrstu viku lokið í Laugalandi. Það rigndi mikið hjá okkur en við létum það ekki á okkur fá og brölluðum heilmargt í vikunni. Á mánudaginn var staðurinn kannaður, sundlaugin prófuð og leikið í leikherberginu. Á þriðjudaginn tók við hinn alræmdi ratleikur Laugalands sem sumardvalarkrakkarnir leistu af mikilli snilld. Á miðvikudaginn var farið á Hestheima en þar búa um 100 hestar, hundar og menn og vakti það mikla lukku. Moli og Vindur þeistu með krakkana á baki og eftir brokk, stökk og skeið var hundunum klappað af mikilli alúð. Fimmtudagurinn heilsaði og enn rigndi en það kom ekki að sök þar sem krakkarnir hér nýttu tímann og undirbjuggu 17. júní af fullum krafti. Voru margir fánar málaðir og dagskráin fyrir daginn sett á blað. Ljóst var að spennan var í hámarki fyrir þjóðhátíðinni.

Á föstudag var svo farið í Slakka. Slakki er húsdýragarður í nágrenni við okkur og þar býr mikið af dýrum. Þangað var haldið í rútunni hjá Óla bílstjóra og eftir að hafa látið reyna á bóndahæfileikana fengu allir sér ís og hoppuðu í pollunum á svæðinu, mikið fjör! Þá rann upp 17. júní og voru allir í hinu besta skapi. Veðrið batnaði þegar leið á daginn og eftir að allir höfðu verið málaðir í öllum regnbogans litum var haldið i skrúðgöngu til hans Olgeirs sem býr fyrir ofan okkur í Nefsholti. Gítarinn var með í föt og sungu krakkarnir af sinni alkunnu snilld. Eftir þetta var svo keppt á Laugalandsleikunum í hinum ýmsu greinum. Að kvöldi 17. var svo kvöldvaka með verðlaunaafhendingu og allir sofnuðu sælir og glaðir eftir vikuna í Laugalandi.

Takk fyrir vikuna krakkar

Kveðja Starfsfólk Laugalands

Myndir


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati