Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
ALMENNT UM REYKJADAL
GLEÐI - ÁRANGUR - ÆVINTÝRI
lýsa vel þeirri starfsemi sem fram fer í Reykjadal, en þar hefur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekið frá árinu 1963 sumar- og helgardvalarstað fyrir fötluð börn og ungmenni.
Árlega dveljast í Reykjadal um 200 börn alls staðar að af landinu, flest þó af Reykjavíkur- og Reykjanessvæðinu.
Frá maílokum fram í miðjan ágúst er boðið upp á sumardvöl og yfir vetrarmánuðina er boðið upp á helgardvöl. Hvert barn getur dvalið í eina til tvær vikur yfir sumartímann og tvær helgar yfir vetrartímann.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og vega þar íþróttir og leikir þungt. Sundlaug er á staðnum ásamt heitum potti og njóta krakkarnir þess mjög að svamla um í heitu vatninu.
Sækja þarf um sumardvöl fyrir 1. mars ár hvert og vetrardvöl fyrir 1. september.
Forstöðumaður Reykjadals er Sólveig Hlín Sigurðardóttir. Hægt er að ná í hana í síma 699-5466 á þriðjudögum og fimmtudögum á milli klukkan 16 og 18. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið reykjadalur@slf.is
Fréttir og viðburðir
6.9.2010
Útitónleikar í Reykjadal
Leit










