Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

STAÐSETNING

Reykjadalur er staðsettur í Mosfellsdal og er þangað aðeins um 20 mínútna akstur frá Reykjavík. Ekið er Vesturlandsveginn í gegnum Mosfellsbæ, þegar komið er út úr bænum er beygt til hægri inn á afleggjarann til Þingvalla. Reykjadalur er í fimmta botnlanga til hægri, en sá botnlangi er merktur ,,Æsustaðir" og er gegnt  afleggjaranum að Mosfelli.

Umhverfið er fallegt, skammt er í fjalllendi og skemmtileg göngusvæði. Íþróttahús, sundlaug og heitur pottur eru á staðnum. Reiðhestar eru í næsta nágrenni og er um 10 mínútna akstur upp að Hafravatni þar sem farið er á báta.

Húsnæði rúmar allt að 30 börn, en fjöldinn ræðst af samsetningu hópsins hverju sinni.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati