Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Að taka á móti gesti
Fyrstu kynni eru alltaf mikilvæg og því verða starfsmenn að gæta þess að vera snyrtilegir og vel upplagðir er þeir taka á móti barni og aðstandendum þess.
Lærið umsókn skjólstæðinga ykkar utanbókar og hafið nöfn foreldra á hreinu. Verið búin að fá þær upplýsingar sem ykkur þykir vanta um viðkomandi. Setjist yfir möppu Reykjadals sem inniheldur nánari upplýsingar um gesti og-/ eða ræðið við forstöðumann.
Byrjið að heilsa skjólstæðingnum, kynna ykkur og bjóða hann velkominn. Heilsið einnig foreldrum og aðstandendum. Ef samstarfsaðili ykkar á hinni vaktinni er ekki á staðnum látið þá gestinn og foreldranna vita hver hann er. Verið traustvekjandi í framkomu til dæmis takið þétt í hendi og sýnið áhuga á gestinum og aðstæðum hans. Hjálpið til við að bera farangur inn og sýnið hvar skjólstæðingurinn á að sofa. Bjóðið foreldrum í kaffi og gönguferð um svæðið og gætið þess að gefa ykkur nægan tíma og spyrja um allt mögulegt sem ykkur dettur í hug. Leyfið foreldrum að spyrja um starfsemina og svarið eftir bestu getu.
Verið dugleg að skrifa niður allar nauðsynlegar upplýsingar, s.s. sérþarfir, lyfjagjafir, hvernig skal meðhöndla hjálpartæki og svo framvegis.
Þegar þið kveðjið aðstandendur skal taka það fram að þeim sé velkomið að hringja hvenær sem er og koma í heimsókn ef þeir treysta gestinum í það. Fullvissið aðstandendur um að þið munið hafa samband til að láta vita hvernig gangi og ef við erum ekki viss um eitthvert atriði í sambandi við gestinn, að þá munum við hringja og fullvissa okkur um að við séum að gera rétt.
Munið að foreldrarnir eru að fela ykkur það dýrmætasta sem þau eiga - látið þau finna frá fyrstu mínútu að þið eruð traustsins verð og að þið munið veita barninu bestu umönnun sem völ er á.
Komið lyfjum og upplýsingum um þau strax í hendur forstöðumanns.
Aðstoðið skjólstæðinginn að pakka upp úr töskunum og gangið úr skugga um að allar eigur hans séu vel merktar og bætið við ef þörf er á !!!! Búið til fatalista ef hann fylgir ekki og lýsið öllum eigum gestsins og athugið að merkja öll hjálpartæki.
-Allt þarf að vera mjög vel merkt-
Fréttir og viðburðir
Leit












