Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Daglegt líf
Almennt
- Tannbursta á alla gesti a.m.k. tvisvar á dag.
- Sjáið til þess að skipt sé reglulega á þeim sem nota bleiur.
- Athugið að gestirnir séu ávallt hreinir og vel til fara.
- Munið að bera sólarvarnir á skjólstæðinga ykkar í sól og björtu veðri.
- Nauðsynlegt að hafa regngalla og stígvél til taks bæði fyrir starfsfólk og gesti - þá sjaldan að hann rignir!
- Gestunum verður að sinna af hlýju og alúð. Takið ykkur góðan tíma til að kynnast þeim. Þið eruð að vissu leyti að taka við hlutverki foreldra á meðan dvölinni stendur.
Borðhald
Það getur tekið mjög langan tíma fyrir börn með fötlun að borða, þau eru jafn mismunandi og þau eru mörg. Gefið þeim allan þann tíma sem þau þurfa og hættið aldrei að mata þau fyrr en þið eruð fullviss um að þau hafi fengið nóg að drekka og borða. Galdurinn felst oft í því að gefa sér góðan tíma og ef þolinmæðina þrýtur er sjálfsagt að biðja annan starfsmann að taka við.
Hægðir
Fylgist mjög vel með því að gestirinir hafi hægðir. Mjög margir gestir hafa slöpp meltingarfæri og hægðir geta verið stórmál. Ef sú er raunin eru gestirnir yfirleitt viðkvæmir fyrir mjólkumat og oft þurfa þeir sérfæði. Gætið þess að vel að allir hafi þessar upplýsingar á hreinu. Hægðarteppa getur leitt til mjög alvarlegara veikinda og því nauðsynlegt að fylgjast vel með hægðum og skrá þær niður.
- Berið virðingu fyrir reynslu hins fatlaða.
- Komið hinum fatlaða ekki í aðstæður sem hann ræður ekki við - þá upplifir hann sig vanmáttugan og sjálfstraustið minnkar.
- Aðgát skal höfð í nærveru sálar - þó að sumir gestanna séu mjög fatlaðir skal aldrei ræða persónuleg málefni þeirra í návist þeirra eða annarra.
- Gætið þess að sýna skjólstæðing ykkar þá virðingu að ganga ekki í eigur þeirra og segja ekki frá leyndarmálum og trúnaðarmálum sem þeir kunna að treysta ykkur fyrir.
Fréttir og viðburðir
Leit












