Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Hefðbundinn dagur

 

  • 08:30. Mæting og morgunfundur - lesið úr vaktbók og allir setja sig inn í atburði síðustu daga. Dagskrá dagsins er skipulögð og allir keppast við að bjóða sig fram og sýna frumkvæði! Er morgunfundi lýkur eru gestirnir aðstoðaðir við klæðnað, tannburstun og þeim gefið að borða. Athugið að búa um ykkar gest og ganga vel frá hans eigum.
  • 09:00. Næturvakt hættir. 
    Dagskrá hefst, börnunum er skipt upp í nokkra hópa. Sund er alltaf á dagskrá    en möguleikarnir eru óþrjótandi og undir starfsfólki komið hversu fjölbreytt og         skemmtileg dagskráin er! Athugið að allir eru komnir fram úr og búnir að borða   klukkan 10.00.
  • 12:00. Hádegismatur.
    Helmingur starfsfólks borðar í einu og fær hvor hópur hálftíma hlé.
  • 13:15. Nú þarf að fara yfir alla munna og þurrka þá sem þurfa, skipta á bleium og gæta þess að allir séu hreinir.
  • 13:30 Dagskrá hefst að nýju. Bátsferðir á Hafravatn eru á mánudögum og          miðvikudögum, en hestaferðir eru á þriðjudögum og fimmtudögum, hestarnir eru í hesthúsahverfinu í Mosfellsbæ. Nesti er oft tekið með og dvalið fram yfir       kaffitímann.
  • 15:00. Kaffitími, starfsmenn eru í 15. mínútur í tveimur hópum. Fram að kvöldmat er oft engin hefðbundin dagskrá og er þessi tími nýttur til að skrifa og skreyta   dagbók gestsins eða eitthvað sem hann kýs að gera. Stundum er þessi tími einnig nýttur til að fara í stand eða teygjuæfingar gerðar. Þessi tími dags er skipulagður með tilliti til þess hóps sem er á staðnum hverju sinni.
  • 18:00. Kvöldmatur.
  • 18:15. Fyrri matur starfsfólks, þ.e. sem eru búnir að vinna kl. 20.00 - 30 mín.
  • 18:45. Seinni matur starfsfólks, þ.e. sem eru á kvöldvakt - 60 mín.
  • 20:00. Starfsmenn fara heim og eru þá búnir að skrifa í vaktbók.
  • Kvöldvaka hefst. Kvöldkaffi er á milli 21:00 og 22:00. Eitt vaktpar sér um         kvöldvöku að hverju sinni - sjá kvöldvöku plan!

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati