Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Starfslýsing fóstru/meðferðarfulltrúa

 

  • Hann ber ábyrgð á sínum gestum og er tengiliður þeirra í Reykjadal. Hann þarf að leggja sig allan fram við að kynnast gestunum og sjá til þess að dvölin verði ánægjuleg.
  • Hann sér um daglega umönnun gestanna, s.s. klæðnað, tannbustun,hreinlæti og gætir þess að gestirnir séu alltaf snyrtilegir til fara.
  • Hann sér til þess að gestirnir fái nóga næringu og gætir þess að gestirnir borði ekki mat sem það hefur ofnæmi fyrir.
  • Hann miðlar viðeigandi upplýsingum til samstarfsfólks og skráir þær á hnitmiðaðan hátt í vaktbók. Ef foreldrar óska eftir nákvæmum upplýsingum um ákveðin atriði skulu þau skráð upp úr vaktbók og afhent.
  • Ef gestur slasast skulu foreldrar strax látnir vita.
  • Hann skal vera í góðu samstarfi við foreldra/aðstandendur.
  • Hann tekur þátt í skipulagi hvers dags og sér til þess að skjólstæðingar hans hafi ávallt nóg fyrir stafni.
  • Hann ber ábyrgð á öllum þeim gestum sem eru í Reykjadal. Það er óafsakanlegt að loka augum fyrir því ef annarra gestir þurfa umönnun. 
  • Hann skal leita til vaktstjóra eða forstöðumanns með hvers kyns vandamál sem upp kunna að koma í starfinu, s.s. varðandi gestina, samstarfsaðila eða foreldra. Forstöðumaður og vakstjórar eru ávallt tilbúnir til að svara spurningum og leysa úr þeim vandamálum sem upp kunna að koma.

 

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati