Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

VELUNNARAR

 

Reykjadalur hefur notið  mikillar velvildar í gegnum tíðina, fjöldi fólks hefur gefið vinnu sína eða lagt til fé til að gleðja börnin. Félagasamtök og fyrirtæki hafa og átt ríkan þátt í uppbyggingu staðarins og því hve starfið hefur verið öflugt.

Glitnir banki hefur undanfarin ár stutt með rausnarlegum hætti við starfsemi Reykjadals með kaupum á Kærleikskúlunni en allur ágóði af sölu hennar rennur í starfssemina.

Klúbbar innan Kiwanishreyfingarinnar, eins og Kiwanisklúbburinn Viðey og Kiwanisklúbburinn Mosfell hafa stutt dyggilega við bakið á starsfemi Reykjadals í gegnum tíðina. Þar hafa Kiwanismenn málað, lagt pípulagnir, gert við gólf og hellulagt. Stærsta verkefnið var söfnun fyrir byggingu nýrrar sundlaugar í Reykjadal og tókst þeim að safna nær tveimur þriðju hlutum þess fjár sem kostaði að byggja sundlaugina. Þá gáfu þeir færanlega lyftu sem nýtist hreyfihömluðum mjög vel auk þess að þeir gáfu nýlega þrjú garðhýsi sem ætluð eru til að þjóna börnunum í Reykjadal í leik.  

Árið 2003 gerði Kiwanisklúbburinn Mosfell Reykjadal kleift að opna eigin heimasíðu með því að gefa allan búnað sem til þarf til reksturs síðunnar, uppsetningu og gerð hennar. Þessi myndarlega gjöf skiptir miklu fyrir fjölskyldur þeirra sem dvelja í Reykjadal og sjálfa dvalargestina. Á vefnum er allar helstu upplýsingar að finna um starfsemina, auk dagbókar sem gerir foreldrum og öðrum aðstandendum kleift að fylgjast með ævintýrum daglegs lífs í Reykjadal. Það er og skemmtilegt fyrir dvalargestina að fylgjast með hvað er að gerast eftir eða áður en þeir koma í Reykjadal.

Kvenfélagið Hringurinn hefur stutt starfssemi félagsins á ýmsan hátt og gaf til að mynda allan búnað og innanstokksmuni í nýlegt anddyri Æfingstöðvarinnar að Háaleitisbraut 13.

Þáttur Kvennadeildar SLF hefur vegið þungt í sjálfboðastarfinu allt frá því að deildin var stofnuð 1966. Kvennadeildin hefur gefið ýmsan gagnlegan búnað og skilað ómældri sjálfboðavinnu á mörgum öðrum sviðum.

 

    


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati