Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

VETRARDVÖL

2008-4  

Yfir veturinn er starfsemi um helgar í Reykjadal. Hefst starfsemin í september og er fram í nóvember. Í lok janúar hefst svo starfsemin aftur og er fram í mars. Gert er ráð fyrir níu helgum hvort tímabil.

Fyrir hverja
Í Reykjadal koma fötluð börn og ungmenni alls staðar að af landinu. Flest eru á aldrinum sex ára til tvítugs.  Þau börn og ungmenni sem hafa rétt á sumardvöl hafa almennt einnig rétt á tveimur helgum í vetrardvöl. Á veturna höfum við örlítið meira svigrúm og höfum því reynt að bjóða þeim, sem ekki koma lengur í sumardvöl vegna aldurs og sækjast sérstaklega eftir því, helgardvöl.

 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu félagsins fyrir 1. september og gildir umsóknin bæði fyrir dvalir fyrir og eftir áramót. Tekið skal fram að hægt er að senda inn umsóknir um dvalir utan þess tíma og reynum við þá að verða við óskum um dvöl eftir bestu getu.
 

 

Brottför - koma:
Tekið er á móti helgargestum í Reykjadal stundvíslega kl. 18:30 á föstudögum. Mikilvægt er að mætt sé á réttum tíma til að allir fái notið sem best dvalarinnar. Sækja skal gesti kl. 16:30 á sunnudegi á sama stað. .

Í farteskinu þarf að vera:

  • Sængurföt þ.e.utan um sæng og kodda (ekki lak)
  • Náttföt
  • Tannbursti og tannkrem
  • Útiföt
  • Sundföt (ekki handklæði)
  • Föt til skiptanna
  • Þeir sem nota lyf skulu koma með þau í merktu lyfjaboxi
  • Mikilvægt er að allt sé vel merkt. Munið að merkja líka sængurföt.

Gjald:
Upplýsingar um verð á helgardvöl er hægt að fá á skrifstofu félagsins í síma 535-0900.
Hægt er að greiða á skrifstofu SLF eða hringja og greiða með greiðslukorti eða fá sendan gíróseðil. Greiða þarf í síðasta lagi viku fyrir brottför. 
Athugið, ef ekki er greitt viku fyrir helgardvöl er litið svo á að viðkomandi ætli ekki að þiggja plássið og því úthlutað að nýju.

Símatími forstöðumanns:
Hægt er að hringja í forstöðumann í síma 699-5466 á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl.16 og 18.  


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati