Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
VILTU STYRKJA STARFSEMINA?
Allt uppbyggingarstarf í Reykjadal hefur byggst á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja auk tekna af minningarkortum og símahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra . Sú mikla velvild sem starfseminni hefur verið sýnd i gegnum tíðina hefur því skipt gríðarlegu máli og gert því kleift að skapa þá umgjörð sem starfað er við í dag.
Þeim sem áhuga hafa á að styrkja starfsemi Reykjadals með fjárframlögum,
er bent á reikning númer 53 í Arionbanka Austurstræti, Reykjavík.
Upplýsingar til útfyllingar gíróseðils eða innlagnarseðils:
Banki Hb Reikn.nr. Kennitala
0301 26 53 630269-0249
Einnig er styrktaraðilum að sjálfsögðu velkomið að hafa samband við skrifstofu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í síma 535 0900, opið er alla virka daga frá kl. 08:00 - 16:00.
Kærleikskúlan
Tilgangurinn með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna, með því að efla starfsemi Reykjadals. Gera þannig fleirum mögulegt að njóta þar ævintýra tilverunnar í hópi jafnaldra – eignast vini og dýrmætar minningar.
Símahappdrætti SLF er eitt af stærstu og elstu lausasöluhappdrættum landsins. Dregið er í happdrættinu einu sinni á ári, á aðfangadag. Síðustu ár hafa bifreiðar frá Toyota verið í vinning. Meira um símahappdrætti SLF.
Minningarkort frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra eru sérlega falleg og eru send samdægurs. Senda kort.
Leit












