Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR
26.11.2008
Halaleikhópurinn hlaut Kærleikskúluna 2008
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra stóð fyrir afhendingu Kærleikskúlunnar 2008 sem fram fór við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur nú í morgun. Í ár var það Halaleikhópurinn sem hlaut kúluna.
Halaleikhópurinn fæst við leiklist á forsendum hvers og eins og hefur þannig á vissan hátt opnað nýja vídd í starfi leikhópa hér á landi. Leikhópurinn er skipaður fötluðum sem ófötluðum leikurum og hefur það að markmiði að iðka leiklist fyrir alla. Þar sem þau hafa á engan hátt látið fötlun sína hindra sig í listsköpun sinni eru þau sannar fyrirmyndir og eru þau því vel að því komin að hljóta Kærleikskúlu ársins 2008.
Guðný Alda Einarsdóttir tók við kúlunni fyrir hönd leikhópsins úr hendi Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra Borgarleikhússins. Afhenti hann kúluna meðal annars með þeim orðum að hópurinn hefði sannað sig í hópi áhugaleikhúsa og hefði svo sannarlega kærleikann meðferðis í listinni sem hann sagði vera svo mikilvægt í leikhúsum.
Kærleikskúla ársins 2008 ber nafnið ALLT SEM ANDANN DREGUR og er eftir Gjörningaklúbbinn. Þær Jóní Jónsdóttir og Eirún Sigurðardóttir meðlimir Gjörningaklúbbsins voru viðstaddar afhendinguna og framkvæmdu þær gjörning sem fólst í því að draga djúpt andann undir kúlunni. Sigrún Hrólfsdóttir þriðji meðlimur Gjörningaklúbbsins var fjarri góðu gamni en hún er í Kanada þar sem hópurinn er einnig með vinnustofu.
Kærleikskúla ársins 2008:
ALLT SEM ANDANN DREGUR
Kærleikskúlan er blásin upp af því dýrmætasta sem hverri lifandi manneskju er gefið
- andardrætti.
Andinn í kúlunni er táknrænn fyrir hið ósnertanlega og andlega, langanir og þrár.
Kúlan er kysst þremur kossum sem fela í sér tjáningu ástar, vináttu og þakklætis.
Kyssum hvert annað.
Gjörningaklúbburinn
Eirún, Jóní og Sigrún
Fréttir og viðburðir
Leit










