Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR
20.1.2010
Helgardvöl í Reykjadal
Nú er helgarstarfið í Reykjadal að hefjast að nýju, en starfið hefst helgina 22. - 24. janúar og lýkur helgina 12. - 14. mars.
Þegar hefur verið sendur tölvupóstur á aðstandendur umsækjenda varðandi boð um helgardvöl en hana verður að staðfesta sem fyrst í síma 535-0900 eða með því að senda tölvupóst á slf@slf.is. Um leið og staðfesting hefur komið verður sendur reikningur fyrir dvölinni að upphæð 7000 kr. sem greiða þarf í síðasta lagi viku fyrir brottför. Einnig er hægt að hringja og greiða með greiðslukorti. Athugið, ef ekki er greitt viku fyrir helgardvöl er litið svo á að viðkomandi ætli ekki að þiggja dvölina. Ef ekki á að nýta dvöl vinsamlegast tilkynnið slíkt sem allra fyrst.
Allir gestir eiga að mæta upp í Reykjadal á föstudögum stundvíslega klukkan 18:30 og skulu sóttir stundvíslega klukkan 16:30 á sunnudögum.
Hægt er að senda fyrirspurnir í tölvupósti á reykjadalur@slf.is Einnig er hægt að hringja í forstöðumann í síma 699-5466 á þriðjudögum og fimmtudögum milli klukkan 16-18.
Leit












