Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR
3.3.2010
Nýr vefur Sjúkratrygginga Íslands
Ný vefsíða Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is var tekin í notkun þriðjudaginn 16. febrúar sl. Vefurinn mun taka við hlutverki tr.is sem upplýsingaveita um réttindi til sjúkratrygginga. Markmiðið er einnig að vefurinn þjóni betur heilbrigðisstarfsfólki og stofnunum heldur en áður hefur verið gert.
Uppbygging vefsins
Í grunninn er vefurinn umfangsmikil upplýsingaveita um sjúkratryggingar en gefur einnig kost á fyrstu skrefum gagnvirkrar þjónustu. Markhópar vefsins er allur almenningur(sem skipta má upp í smærri hópa t.d. eldri borgarar, öryrkjar, aðstandendur, barnafólk og aðrir sem nota mikið heilbrigðisþjónustu) heilbrigðisstarfsfólk/stofnanir, birgjar og starfsmenn stjórnsýslunnar.
Vefurinn er þannig uppbyggður að dregnar eru fram meginstoðir starfsemi SÍ. Undir heitinu „Heilbrigðisþjónusta" má finna upplýsingar um niðurgreidda heilbrigðisþjónusta. „Slys" inniheldur upplýsingar um slysa- og sjúklingatryggingu. „Lyf og hjálpartæki" gera síðan réttindum til þeirra málaflokka góð skil. Auk þessarra aðalflokka er bætt við praktískum upplýsingum til heilbrigðisstarfsfólks undir „Heilbrigðisstarfsfólk" en síðan má finna praktískar upplýsingar um stofnuna undir „Um okkur".
Vefurinn vísar í gagnvirka þjónustu SÍ „Þjónustugáttir SÍ" sem komið er af stað í samvinnu við skattur.is og Onesystems. Í framtíðinni er ætlunin að vefurinn þjóni enn stærra hlutverki í gagnasamskiptum stofnunarinnar við almenning og heilbrigðisstarfsfólk.
Fyrir miðri forsíðu eru dregnir fram allra helstu þjónustuþættir stofnunarinnar, eins og afsláttarkort, Evrópskt sjúkratryggingakort, upplýsingar um fjárhæðir og gjaldskrár og eyðublöð svo eitthvað sé nefnt. Fréttavirkni er á sínum stað á forsíðu er sýnir hvað er helst á döfinni er varðar sjúkratryggingaumhverfið. Góð skírskotun er í vef TR svo áfram verði góð tenging í upplýsingagjöf milli stofnananna. Lagt er upp með góðum flýtileiðum þar sem undirflokkar endurspegla vefinn nánast í heild sinni neðst á síðunni.
Í vefstefnu stofnunarinnar kemur fram að áætlað er að ná 3. stigs vottunarforgangi frá Sjá. Vefurinn mun á næstunni ná 1. og 2. stigs vottun. Sjá vottunarskilgreiningu Sjá
Undirbúningur
Vinna við vefinn hófst í byrjun október. Markmið voru þau að koma á einföldu og notendavænu viðmóti og góðu leiðakerfi. Upplýsingar um sjúkratryggingar, sem voru á tr.is, hafa nú verið endurskoðaðar en verða áfram í stöðugri þróun.
Farið var í samstarf við Hugsmiðjuna ehf sem hannaði vefinn og Sjá ehf sem sá um ráðgjöf vegna undirbúnings, þarfagreiningar og aðgengismála. Myndaður var vefhópur innanhúss sem kom að öllum undirbúningi vefsins og var tengiliður við allar deildir stofnunarinnar. Farið var í umfangsmikla þarfagreiningu innanhúss þar sem margar breytingartillögur voru gerðar til að betrumbæta aðgengi og upplýsingar um sjúkratryggingar. Vefurinn var síðan prófaður af tilvonandi notendum og ýmsir hagsmunaaðilar fengnir til að rýna hann.
Niðurstaðan er vonandi góð en vefurinn mun verða í stöðugri þróun áfram.
Sjúkratryggingar Íslands
Fréttir og viðburðir
6.9.2010
Útitónleikar í Reykjadal
Leit










