Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

FRÉTTIR

16.8.2010

Sorpa gefur 7.5 milljónir til söfnunar Reykjadals

Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, færði forsvarsmönnum Reykjadals, 7,5 milljónir á lokahátíðinni sem fram fór í Reykjadal í gær.

Ballgestir leyndu ekki gleði sinni yfir þessum stórkostlegu tíðindum og má segja að hafi bæði verið  hlegið, grátið og dansað í Reykjadalnum í gær.

Þessi höfðinglega gjöf hækkaði þá upphæð heldur betur sem hefur safnast en hún nær nú um 14 milljónum og vantar því einungis um 1 milljón svo að markmiðinu sé náð.

Hápunktur söfnunarinnar er á morgun, þriðjudag en þá munu starfsmenn ganga með einhvern sitjandi í hjólastól frá Laugalandi í Holtum, þar sem eru einnig eru sumarbúðir á vegum SLF, í Reykjadal og þaðan að húsakynnum Styrktarfélagsins að Háaleitisbraut 13. Vegalengdin er ca 130 km. Áætluð koma að Háaleitisbraut verður um kl. 14:00 miðvikudaginn 18. ágúst.

Þeim sem vilja leggja söfnuninni lið er bent á söfnunarreikninginn: 549-26-10 kt.630269-0249 og söfnunarsímana:

904-1010 fyrir 1000 kr.

904-1030 fyrir 3000 kr.

904-1050 fyrir 5000 kr.

 

Söfnunin á Facebook:

http://www.facebook.com/#!/group.php?gid=143211579032481

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati