Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR
16.8.2010
Starfsmenn Reykjadals ganga og safna áheitum
Líkt og fram hefur komið víða munu starfsmenn Reykjadals efna til mikillar göngu á morgun þriðjudaginn 17. ágúst til stuðnings Reykjadals.
Gangan hefst klukkan 8 og verður farið frá sumarbúðum SLF að Laugalandi í Holtum, í Reykjadal og svo þaðan að höfuðstöðvum Styrktarfélagsins að Háaleitisbraut 13 þangað sem áætluð koma er um kl. 14 á miðvikudag. Starfsmenn munu ganga með farþega í hjólastólum alla leiðina en meðal þeirra sem ætla að sitja í stólunum eru Ómar Ragnarsson sjónvarpsmaður og skemmtikraftur, Gunnar Eyjólfsson leikari, Edda Björg Eyjólfsdóttir leikkona, Steindi Jr. skemmtikraftur o.fl.
Hægt verður að fylgjast með staðsetningu hópsins alla leiðina á www.depill.is/reykjadalur.
Við minnum á söfnunarreikninginn og söfnunarsímana:
Reikningsnr: 549-26-10 kt.630269-0249
904-1010 fyrir 1000 kr.
904-1030 fyrir 3000 kr.
904-1050 fyrir 5000 kr.
Fylgist með á Facebook:
http://www.facebook.com/#!/group.php?gid=143211579032481
Leit












