Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR
19.8.2010
Hendrikka Waage, Soroptomistaklúbbur Seltjarnarness og Hringurinn gefa til Reykjadalssöfnunarinnar
Í gær um kl.14.30 lauk söfnunargöngu starfsmanna Reykjadals hér á Háaleitisbrautinni, en starfsmenn höfðu þá gengið í um tvo sólarhringa alls um 130 km.
Við móttökuna afhenti Hendrikka Waage hálfa milljón sem renna á til söfnunarinnar, en þetta er hluti höfundarlauna hennar fyrir bókina Rikka og töfrahringurinn sem Hendrikka gaf nýverið út á nokkrum tungumálum. Einnig gaf Soroptimistaklúbbur Seltjarnarness 1,2 milljón til söfnunarinnar en þær hafa verið gjafmildar og styrkt ýmis málefni í gegnum tíðina og þá einna helst einhverf börn.
Þá gaf kvenfélagið Hringurinn eina milljón króna og er því ljóst að starfið í Reykjadal heldur áfram í vetur og vonandi um ókomin ár en heildarupphæðin sem hefur safnast er rúmar 18 milljónir.
Við viljum nýta tækifærið og þakka öllum þessum frábæru styrktaraðilum fyrir stuðninginn og svo auðvitað starfsfólki Reykjadals fyrir dugnaðinn, kraftinn og gleðina sem þau búa yfir.
Félagar úr Soroptimistaklúbb Seltjarnarness afhenda 1,2 milljón til söfnunarinnar
Leit












