Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

FRÉTTIR

19.8.2010

Umsóknarfrestur um helgardvalir er til 1. sept.

Jæja þá er endanlega orðið ljóst að nægt fjármagn hefur safnast til að halda áfram að bjóða upp á helgardvalir í Reykjadal! Frábært hvað starfsfólkið stóð sig vel og gaman að segja frá því að hugmynd sem byrjaði sem kleinusala varð að risasöfnun og endaði með að  um 18 milljónir söfnuðust!!  

Við viljum við þetta tækifæri minna á að umsóknarfrestur um helgardvalir er til 1. september nk. Hér má nálgast umsóknareyðublöð og skal þeim skilað á skrifstofu félagsins, Háaleitisbraut 13 en einnig er hægt að senda þau útfyllt í pósti eða tölvupósti á reykjadalur@slf.is.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati